Innanlandssamráð um vegið meðaltal fjármagnskostnaðar (WACC) fyrir árið 2026
Innanlandssamráð um vegið meðaltal fjármagnskostnaðar (WACC) fyrir árið 2026
Fjarskiptastofa kallar eftir samráði um ákvörðun um vegið meðaltal fjármagnskostnaðar (WACC) fyrir árið 2026.
Fjarskiptastofa hyggst breyta um aðferðafræði við útreikning á WACC eftir ábendingu frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA). Ábending ESA snýr að því hvernig Beta gildi er ákvarðað miðað við viðeigandi skuldsetningu sem er í samræmi við WACC tilkynningu Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) frá 2019. Stofnunin mun árlega taka sérstaka ákvörðun um WACC sem notað er fyrir kostnaðargreiningar sem stofnunin vinnur að þangað til ný ákvörðun um WACC tekur gildi.
Veginn meðalkostnaður fjármagns (Weighted Average Cost of Capital; WACC) er meðaltal fjármagnskostnaðar fyrirtækis. Hann ræðst af því að hversu miklum hluta fjármunir fyrirtækis eru fjármagnaðir með lánsfé annars vegar og eigin fé hins vegar og kostnaði við það fjármagn sem notað er. WACC er notað til að reikna kostnað af stofnfjárfestingu sem bundinn er í eignum sem notaðar eru í sambandi við framboð þjónustu eða þjónustuvöru. Í 16. gr. reglugerðar nr. 555/2023 um bókhald og kostnaðargreiningu í rekstri fjarskiptafyrirtækja segir að reikna skuli kostnað af stofnfjármagni sem bundið er í eignum sem notaðar eru í sambandi við framboð þjónustu eða þjónustuvöru.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) hefur gefið út WACC tilkynningu með leiðbeiningum um útreikninga á fjármagnskostnaði innviða.
Megintilgangur með þessum leiðbeiningum er að samræma útreikninga á vegnu meðaltali fjármagnskostnaðar eða WACC og gera þá aðgengilegri og fyrirsjáanlegri.
Fjarskiptastofa hyggst taka mið af þessum leiðbeiningum þar sem það á við.
Í meðfylgjandi samráðsskjali merkt „Vegið meðaltal fjármagnskostnaðar (WACC) fyrir árið 2026“ er aðferðafræði og útreikningar stofnunarinnar við ákvörðun á WACC fyrir árið 2026 útlistaðir.
Hér með er fjarskiptafyrirtækjum og öðrum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að gera athugasemdir vegna þeirra draga sem hér liggja fyrir, sbr. 24. gr. laga nr. 75/2021 um Fjarskiptastofu. Allar athugasemdir skulu gerðar með greinargóðum hætti þar sem vísað skal í þá liði sem um ræðir. Þegar Fjarskiptastofa hefur metið framkomnar athugasemdir og gert þær breytingar á frumdrögunum sem stofnunin telur nauðsynlegar mun Fjarskiptastofa senda drögin til ESA til samráðs áður en endanleg ákvörðun verður tekin.
Frestur til að skila inn umsögnum og athugasemdum er til og með 17. ágúst nk.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Þ. Daðason (netfang: snorri(hjá)fjarskiptastofa.is).
Fjarskiptastofa mun birta opinberlega allar athugasemdir sem berast, nema sérstaklega verði óskað trúnaðar og mun þá stofnunin leggja mat á slíka beiðni.
Samráðsskjal: Vegið meðaltal fjármagnskostnaðar (WACC) fyrir árið 2026.