Hoppa yfir valmynd

Fjarskiptastofa setur í loftið NIS2 könnun fyrir fyrirtæki og stofnanir

Fréttasafn
25. mars 2026

Fjarskiptastofa setur í loftið NIS2 könnun fyrir fyrirtæki og stofnanir

Netöryggissvið Fjarskiptastofu hefur sett í loftið nýja könnun sem ætlað er að aðstoða fyrirtæki og stofnanir við að meta hvort líklegt sé að þau falli undir gildissvið netöryggistilskipunar Evrópusambandsins (NIS2).

NIS2 tilskipunin er lykilþáttur í því að efla netöryggi innan Evrópu og felur í sér auknar kröfur til fjölda aðila sem veita efnahagslega og samfélagslega mikilvæga þjónustu. Með tilskipuninni er gildissvið netöryggistilskipana ESB víkkað, ítarlegri netöryggiskröfur settar og ábyrgð stjórnenda aukin.

Markmið könnunarinnar er að veita aðilum leiðbeinandi innsýn í hvort starfsemi þeirra falli undir tilskipunina og hvort tilefni sé til frekari greiningar á skyldum samkvæmt komandi löggjöf. Könnunin byggir á helstu þáttum sem ráða gildissviði NIS2, svo sem tegund þjónustu, stærð rekstrar og mikilvægi starfseminnar fyrir samfélagið.

„Við viljum leggja okkur fram við að styðja fyrirtæki og stofnanir í undirbúningi fyrir innleiðingu NIS2 tilskipunarinnar. Þessi könnun er einn liður í því að auðvelda aðilum að átta sig á stöðu sinni og hefja undirbúning tímanlega,“ segir Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir, sviðsstjóri netöryggissviðs Fjarskiptastofu. Aukin vitund og greining á stöðu er lykilatriði til að tryggja að aðilar geti brugðist tímanlega við auknum kröfum um net- og upplýsingaöryggi

Niðurstöður könnunarinnar verða eingöngu leiðbeinandi og fela ekki í sér formlegt eða bindandi mat á því hvort aðili falli undir NIS2. Endanlegt mat á gildissviði og skyldum mun ávallt byggja á lögum og reglugerðum eins og þær verða innleiddar hér á landi en ekki liggur fyrir hvenær NIS2 tilskipunin verður innleidd.

Þá er jafnframt bent á að könnunin nær ekki yfir alla þá þætti sem geta haft áhrif á hvort aðili falli undir tilskipunina. Aðilar eru því hvattir til að líta á niðurstöður sem fyrsta skref og leita frekari upplýsinga eða ráðgjafar ef þörf krefur.

Slóð á könnun Fjarskiptastofu: NIS2 könnun Fjarskiptastofu

Slóð á netöryggistilskipun ESB (NIS2): https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/PDF/?uri=CELEX:32022L2555