Hoppa yfir valmynd

Fjarskiptastofa kallar eftir samráði um gjaldskrá Mílu fyrir aðgang að ljósbylgjum á heildsölumarkaði fyrir stofnlínuhluta leigulína

Fréttasafn
24. nóvember 2023

Fjarskiptastofa kallar eftir samráði um gjaldskrá Mílu fyrir aðgang að ljósbylgjum á heildsölumarkaði fyrir stofnlínuhluta leigulína

Míla hf. (Míla) hefur ákveðið að bjóða nýja þjónustu, ljósbylgju, og hefur því lagt fram kostnaðargreiningu á þeirri þjónustu ásamt breytingu á viðmiðunartilboði félagsins. Heildsölugjaldskrá Mílu fyrir ljósbylgjur og breyting á viðmiðunartilboði leigulína, sem hér er til umfjöllunar byggir í grundvallaratriðum á þeim kvöðum sem lagðar voru á fyrirtækið með ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 21/2015, dags. 12. ágúst 2015, um útnefningu fyrirtækis með umtalsverðan markaðsstyrk og álagningu kvaða á heildsölumarkaði fyrir stofnlínuhluta leigulína.

Fjarskiptastofa (FST) hefur lokið við yfirferð á kostnaðargreiningu Mílu á heildsölugjaldskrá fyrir ljósbylgjur og kallar eftir samráði um niðurstöðu hennar ásamt þeim breytingum sem gerðar eru á viðmiðunartilboði leigulína af þessu tilefni. 

Ljósbylgja er samband í bylgjulengdarkerfi Mílu sem notar DWDM tækni. Boðið er upp á ljósbylgju á tilgreindum stöðum í stofnneti Mílu og eru fjórir gagnaflutningshraðar í boði 1, 10, 25 og 100 Gb/s og sex vegalengdarflokkar. Mánaðarverð samkvæmt niðurstöðu kostnaðargreiningarinnar eru frá 44.494 kr. til 611.610 kr.

Hér með er fjarskiptafyrirtækjum og öðrum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að gera athugasemdir vegna þeirra draga sem hér liggja fyrir, sbr. 24. gr. laga nr. 75/2021 um Fjarskiptastofu. Allar athugasemdir skulu gerðar með greinanlegum hætti þar sem vísað skal í þá liði sem um ræðir. Þegar FST hefur metið framkomnar athugasemdir og gert þær breytingar á frumdrögunum sem stofnunin telur nauðsynlegar mun FST senda drögin til ESA til samráðs áður en endanleg ákvörðun verður tekin. 

Frestur til að skila inn umsögnum og athugasemdum er til og með 27. desember nk.

Nánari upplýsingar veitir Hulda Ástþórsdóttir (netfang: hulda(hjá)fjarskiptastofa.is). FST mun birta opinberlega allar athugasemdir sem berast, nema sérstaklega verði óskað trúnaðar og mun þá stofnunin leggja mat á slíka beiðni.

Samráðsskjölin:

Kostnaðargreining Mílu á ljósbylgju (pdf)
Viðauki I: WACC 2022 (pdf)
Viðauki II: Breytingar á viðauka 1 við viðmiðunartilboð leigulína (pdf)
Viðauki III: Breytingar á viðauka 2a við viðmiðunartilboð leigulína (pdf)
Viðauki IV: Breytingar á viðauka 3 við viðmiðunartilboð leigulína (pdf)