Hoppa yfir valmynd

Fjarskiptastofa kallar eftir samráði um endurskoðun á útnefningu fjarskiptafyrirtækja með umtalsverðan markaðsstyrk á tilteknum landfræðilegum mörkuðum á heildsölumarkaði fyrir staðaraðgang með fasttengingu

Fréttasafn
15. desember 2025

Fjarskiptastofa kallar eftir samráði um endurskoðun á útnefningu fjarskiptafyrirtækja með umtalsverðan markaðsstyrk á tilteknum landfræðilegum mörkuðum á heildsölumarkaði fyrir staðaraðgang með fasttengingu

Í maí 2024 gaf Fjarskiptastofa (FST) út ákvörðun nr. 5/2024 um útnefningu fyrirtækja með umtalsverðan markaðsstyrk og álagningu kvaða á heildsölumörkuðum fyrir staðaraðgang með fasttengingu (markaður 3a/2016) og miðlægan aðgang með fasttengingu fyrir fjöldaframleiddar vörur (markaður 3b/2016). Í þeirri ákvörðun var landinu í fyrsta sinn skipt upp í fjölda landfræðilegra markaða: 38 á markaði 3a og 43 á markaði 3b. Í landfræðilegri greiningu FST voru sveitarfélög notuð sem grunneining.

FST hefur fylgst með þróun á þessum mörkuðum frá því ákvörðunin var gefin út og þá sérstaklega með tilliti til uppkaupa á ljósleiðaranetum en slík breyting felur oft í sér verulega breytingu á markaðshlutdeild þess sem kaupir netið.

Á árunum 2024 og 2025 hefur Míla keypt staðbundin ljósleiðaranet í nokkrum sveitarfélögum, þar á meðal Eyja- og Miklaholtshreppi og Vestmannaeyjabæ. Eftir þessi kaup er Míla komin með 100% markaðshlutdeild á markaði 3a í þessum sveitarfélögum og telst því markaðsráðandi að mati FST. Því hyggst FST leggja kvaðir á Mílu í þessum sveitarfélögum.

Í Langanesbyggð hefur Tengir keypt ljósleiðaranet Fjarskiptafélags Svalbarðshrepps, sem hefur leitt til þess að markaðshlutdeild Mílu hefur dregist saman í sveitarfélaginu. Í Fjallabyggð og Sveitarfélaginu Vogum hefur samkeppni aukist og markaðshlutdeild Mílu minnkað, m.a. vegna aukinnar útbreiðslu ljósleiðara Tengis og Ljósleiðarans. Í ljósi þessara breytinga telur FST ekki lengur forsendur fyrir því að viðhalda kvöðum á Mílu í þessum sveitarfélögum og hyggst fella þær niður sex mánuðum eftir birtingu lokaákvörðunar.

Frá síðustu ákvörðun á þessum mörkuðum hafa tvær sameiningar sveitarfélaga gengið í gegn og ein önnur sameining verið samþykkt í íbúakosningu. Í drögunum er farið yfir þessar sameiningar og markaðsstyrkur aðila metinn í hinum sameinuðu sveitarfélögum. FST telur ekki þörf á að gera neinar breytingar á útnefningu fyrirtækja með umtalsverðan markaðsstyrk við sameiningu þessara sveitarfélaga eins og nánar er fjallað um í drögunum.

Samráðsdrög

Hér með er fjarskiptafyrirtækjum og öðrum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að gera athugasemdir vegna þeirra draga sem hér liggja fyrir, sbr. 24. gr. laga nr. 75/2021 um Fjarskiptastofu. Allar athugasemdir skulu gerðar með greinanlegum hætti þar sem vísað skal í þá liði sem um ræðir. Þegar FST hefur metið framkomnar athugasemdir og gert þær breytingar á frumdrögunum sem stofnunin telur nauðsynlegar mun FST senda drögin til ESA til samráðs áður en endanleg ákvörðun verður tekin.

Frestur til að skila inn umsögnum og athugasemdum er til og með 19. janúar nk.

Nánari upplýsingar veitir Hulda Ástþórsdóttir (netfang: hulda(hjá)fjarskiptastofa.is). FST mun birta opinberlega allar athugasemdir sem berast, nema sérstaklega verði óskað trúnaðar og mun þá stofnunin leggja mat á slíka beiðni.