Hoppa yfir valmynd

Fjarskiptastofa gestgjafi á stjórnarfundi BEREC í Reykjavík

Fréttasafn
11. júní 2025

Fjarskiptastofa gestgjafi á stjórnarfundi BEREC í Reykjavík

Fjarskiptastofa var í gestgjafahlutverki á 63. stjórnarfundi BEREC (Samtaka evrópskra fjarskiptaeftirlitsstofnana) sem fram fór í Reykjavík dagana 5.–6. júní 2025.

Fundurinn var haldinn á Hilton Reykjavik Nordica og þar komu saman saman yfir 100 forstjórar og sérfræðingar frá systurstofnunum Fjarskiptastofu í Evrópu til að ræða helstu þróunarmál í fjarskiptageiranum með hliðsjón af hinu samevrópska fjarskiptaregluverki.

Dagskrá fundarins var fjölbreytt þar sem meðal annars voru rædd mikilvæg mál eins og markaðseftirlit, samnýting innviða, útbreiðsla háhraðaneta og stefna BEREC 2026–2030. 

Einnig voru veittar upplýsingar um framvindu verkefna á vegum BEREC varðandi framkvæmd Evróputilskipunar um stafræna háhraðainnviði (Gigabit Infrastructure Act) sem stuðlar að öruggum og sjálfbærum stafrænum netum í Evrópu. Á fundinum var einnig rætt um endurskoðun ESB á regluverki fjarskipta en sú vinna gengur undir nafninu DNA (e. Digital Network Act). Markmið vinnunnar er að einfalda regluverkið, stuðla að einsleitum stafrænum markaði innan Evrópusambandsins og takast á við nýjar áskoranir sem fylgja stórstígum framförum í stafrænni tækni og þjónustu. 

Hrafnkell V, Gíslason, lýsti yfir ánægju með hlutverk Íslands sem gestgjafa:
"Það er mikill heiður fyrir okkur að taka á móti evrópskum samstarfsaðilum okkar hér í Reykjavík til þessara mikilvægu umræðna. Að hýsa 63. stjórnarfund BEREC undirstrikar skuldbindingu Íslands við að skapa öflugt og framsækið fjarskiptasamfélag. Þessir fundir leggja grunn að sameiginlegum lausnum á þeim áskorunum og tækifærum sem móta framtíð fjarskipta."

Umræðan á fundinum veitti einnig dýrmæta innsýn í netöryggi, eftirlit með sæstrengjum, stjórnun stafræna markaðarins og mikilvægi sjálfbærni í fjarskiptageiranum.

Fjarskiptastofa þakkar öllum þátttakendum og hagsmunaaðilum kærlega fyrir þeirra framlag og samstarf sem gerði þennan fund að árangursríkum vettvangi fyrir uppbyggilegar umræður.