Hoppa yfir valmynd

Fjarskiptastofa gefur út verklagsreglur vegna gagnaöflunar stofnunarinnar

Fréttasafn
06. mars 2024

Fjarskiptastofa gefur út verklagsreglur vegna gagnaöflunar stofnunarinnar

Fjarskiptastofa sinnir fjölbreyttum verkefnum við framþróun fjarskiptamarkaðar. Hafa þessi verkefni m.a. það markmið að efla samkeppni neytendum til hagsbóta, auka aðgengi almennings að háhraða gagnaflutningsþjónustu og stuðla að öryggi fjarskiptaneta og auknum gæðum þjónustunnar. Slíkum verkefnum hefur farið fjölgandi á undanförnum árum, sérstaklega hvað varðar uppbyggingu á fjarskiptainnviðum og eftirlit með öryggi þeirra. Mörg af þessum verkefnum kalla á umfangsmikla gagnaöflun um fjarskiptainnviðina, markaðs- og samkeppnisaðstæður, rekstrarafkomu fjarskiptafyrirtækja, auk upplýsinga um stjórnunarkerfi upplýsingaöryggis og öryggisráðstafanir fjarskiptafyrirtækja.

Viðvarandi og reglubundin upplýsingasöfnun er orðin svo umfangsmikil að nauðsynlegt þykir að skipuleggja hana með breyttu verklagi. Fjarskiptastofa hefur því gefið út verklagsreglur um gagnaöflun stofnunarinnar. Verklagsreglunum er ætlað að auka skilvirkni í reglubundnum gagnaöflunum Fjarskiptastofu, auka enn frekar öryggi gagna og auka gagnsæi og fyrirsjáanleika fyrir aðila um framkvæmdina. Verklagsreglunum og það verklag sem af þeim leiðir er jafnframt ætlað að einfalda og auðvelda aðilum að vinna úr gagnabeiðnum, auk þess að stuðla að betra samræmi í framsetningu á svörum.

Liður í breyttu fyrirkomulagi gagnaöflunar er að birta yfirlit yfir væntanlegar gagnabeiðnir Fjarskiptastofu fyrir komandi ár. Var slíkt yfirlit birt á heimasíðu Fjarskiptastofu með frétt þann 5. desember sl. fyrir árið 2024 í tengslum við opið samráð við hagaðila um gerð verklagsreglna um gagnaöflun.

Ráðgert er að birta slíkt yfirlit árlega til að auka gagnsæi og fyrirsjáanleika um upplýsingasöfnun Fjarskiptastofu.

Stefnt er að því að upplýsingasöfnun eigi sér stað í gegnum rafræna upplýsingagátt, en verið er að vinna að hönnun og útfærslu hennar. Því reynir ekki á viðeigandi ákvæði verklagsreglnanna um þetta enn sem komið er. Leiðbeint verður um notkun upplýsingagáttarinnar þegar þar að kemur.  

Verklagsreglurnar snúa fyrst og fremst inn á við í starfsemi Fjarskiptastofu, þ.e. þær varða skipulag, útfærslu og framkvæmd gagnasöfnunar samkvæmt fyrir fram skilgreindum ferlum. En eðli málsins samkvæmt hafa verklagsreglurnar einnig áhrif á eftirlitsskylda aðila sem þurfa að gera ráðstafanir til að laga sig að samræmdu verklagi gagnasöfnunar. Eins og fyrr segir er markmiðið m.a. að einfalda og auðvelda ferlið.

Verklagsreglur um gagnaöflun.