Hoppa yfir valmynd

Fjarskiptastofa framlengir gildistíma á tíðniheimild Símans á 900 MHz

Fréttasafn
18. desember 2025

Fjarskiptastofa framlengir gildistíma á tíðniheimild Símans á 900 MHz

Farsími

Í dag tók Fjarskiptastofa (FST) ákvörðun um að samþykkja beiðni Símans hf. (Síminn) að fá framlengingu á viðbótartíðniheimild félagsins á 900 MHz tíðnisviðinu til 30. júní 2026 vegna áframhaldandi útfösunar á eldri farnetskerfum fyrir 2G og 3G þjónustur.

Að loknu samráði FST um áform íslenskra farnetsrekenda um lokun á eldri farnetskerfum náðu þeir samkomulagi um samræmda tímasetningu útfösunar sem skyldi vera lokið fyrir 31. desember 2025, eins og greint var frá í frétt á heimasíðu FST þann 23. nóvember 2022. Um var að ræða sjálfstæða ákvörðun viðkomandi fjarskiptafyrirtækja og var útfösun kerfanna ekki bundin skilyrðum af hálfu FST.

Nú þegar skammt er til áramóta og þess tíma sem farnetsfyrirtækin ætluðu sér til að ljúka útfösun á eldri farnetstækni liggur fyrir að meðan Sýn hf. (Sýn) og Nova hf. (Nova) hafa þegar, að öllu eða mestu leyti, lokið útfösun kerfa sinna, að þá á Síminn ennþá nokkuð í land, einkum hvað varðar lokun 3G kerfisins.  Í beiðni Símans frá 14. nóvember sl. kemur fram að í ljósi þess fjölda viðskiptavina félagsins sem nota símtæki sem styðja ekki talrás á 4G kerfum (VoLTE) þyki ekki skynsamlegt að hraða lokun 3G kerfisins fyrir áramót og á þeim tíma árs sem veðurskilyrði geta verið erfið.

Í ljósi aðstæðna, forsögu málsins og fyrri ákvörðunar FST, taldi stofnunin rétt að efna til opins samráðs við hagsmunaaðila um fram komna beiðni Símans og fyrirhugaða afstöðu FST til hennar. Sýn og Nova skiluðu athugasemdum sem lutu m.a. að því að áframhaldandi þjónusta Símans á 3G gæti skekkt samkeppnisaðstæður á markaði, skapað Símanum tekjur umfram aðra farnetsrekendur varðandi reikiþjónustu og að Síminn ætti ekki að njóta góðs af því að hafa vanrækt að standa við tímasetningu útfösunar. Í tilviki Sýnar var þess sérstaklega krafist að beiðni Símans yrði hafnað.

Í ákvörðun sinni komst FST að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi ekki brotið lög, reglur eða fyrirmæli FST þótt að tímaáætlun félagsins um útfösun eldri farnetskerfa hafi ekki gengið eftir. Ekki væri því hægt að hafna beiðni Símans á grundvelli einhvers konar vanefnda félagsins . Horfa þyrfti til þeirra aðstæðna sem væru nú uppi og meta hagsmuni aðila og almennings út frá því.

Niðurstaða FST var á þá leið að þótt ekki væri hægt að útiloka að tímabundin áframhaldandi þjónusta Símans á 3G kynni mögulega að hafa neikvæð áhrif á samkeppni á farnetsmarkaði, a.m.k. til skemmri tíma, að þá væru almanna- og öryggishagsmunir stórs hóps notenda, um að loka ekki þjónustunni á skömmum tíma yfir vetrartímann og geta á þeim tíma áfram hringt m.a. í númerið 112 úr símtækjum sínum, taldir vera mun ríkari. Var því fallist á beiðni Símans að tilteknum skilyrðum uppfylltum.

Ákvörðunin (pdf)