Hoppa yfir valmynd

Fjarskiptastofa framlengir gildistíma á kvöðum Mílu á heimtauga- og bitastraumsmörkuðum

Fréttasafn
29. febrúar 2024

Fjarskiptastofa framlengir gildistíma á kvöðum Mílu á heimtauga- og bitastraumsmörkuðum

Frá því að úrskurður úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála (ÚFP) í kærumáli nr. 3/2021 var kveðinn upp þann 29. desember 2021 hefur legið fyrir að Fjarskiptastofa (FST) myndi endurskoða markaðsgreiningu sína á heimtauga- og bitastraumsmörkuðum, m.a. vegna þeirra forsendubreytinga á fjarskiptamarkaði sem urðu haustið 2021 með sölunni á Mílu út úr Símasamstæðunni. Samkvæmt úrskurðinum skyldi þeirri vinnu lokið fyrir 15. september 2023.

 Af ýmsum ástæðum tók vinnsla markaðsgreiningarinnar lengri tíma en áætlað var og því reyndist FST nauðsynlegt að leggja á Mílu nýjar kvaðir, til bráðabirgða, með gildistíma til 1. mars 2024, sbr. ákvörðun FST nr. 9/2023. Kæru Mílu um þessa bráðabirgðaákvörðun var vísað frá í úrskurði ÚFP frá 20. desember 2023, sbr. kærumál nr. 1/2023 þar sem slíkar ákvarðanir eru almennt ekki kæranlegar.

 Á vinnslutíma markaðsgreiningarinnar hefur FST efnt til þriggja samráða, þ.e. um markaðsgreininguna, fyrirhugaða álagningu kvaða og útfærslu þeirra og núna síðast í janúar á þessu ári um afmarkaða þætti er lutu að álitamálum um hrein heildsölufyrirtæki (e. Wholesale-only) og aðrar minniháttar breytingar. Nauðsyn þessa þriðja og síðasta samráðs hefur orðið til þess að FST nær ekki að ljúka við markaðsgreininguna með formlegu samráði við Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) fyrir sett tímamark þann 1. mars 2024.

 Vinna við markaðsgreininguna er hins vegar lokið og að sama skapi þýðing á henni á ensku fyrir ESA. Vegna verkefnastöðu ESA hefur stofnunin aftur á móti tilkynnt FST að hún geti ekki tekið greininguna í formlegt samráðsferli fyrr en eftir páska. Með tilliti til þessa hefur FST tilkynnt ESA að markaðsgreiningin verði formlega tilkynnt til ESA þann 2. apríl nk. sem mun í framhaldinu taka sér 30 daga til að skila áliti/umsögn á greiningunni.

 Þar sem nú er fyrirséð að markaðsgreiningunni verður ekki lokið með formlegri ákvörðun FST fyrir 1. mars nk. þykir FST aftur nauðsynlegt að framlengja gildistíma á kvöðum Mílu, til bráðabirgða, eða í síðasta lagi til 1. júní 2024. Það er þó von FST að endanleg ákvörðun verði tekin í málinu fljótlega í maí.

 Hefur Mílu verið tilkynnt þetta með bréfi dagsettu í dag. Til frekari skýringa og rökstuðnings FST fyrir framangreindri ráðstöfun er vísað í umrætt bréf.