Hoppa yfir valmynd

Fjarskiptastofa fagnar aukningu í tilkynningum til FST um jarðvegsframkvæmdir

Fréttasafn
05. nóvember 2025

Fjarskiptastofa fagnar aukningu í tilkynningum til FST um jarðvegsframkvæmdir

Eitt af meginmarkmiðum fjarskiptalaga er að stuðla að aukinni útbreiðslu háhraða gagnaflutningsþjónustu og að slík uppbygging geti átt sér stað á skilvirkum og hagkvæmum forsendum. Til að ná þessu markmiði hefur evrópskt fjarskiptaregluverk að geyma tiltekin úrræði sem ætluð eru til að greiða fyrir þessari vegferð. Hér er t.d. um að ræða hvata til samnýtingar á innviðum og jarðvegsframkvæmdum. Sett hafa verið sérstök lög til að búa til ramma um samlegðartækifæri og gagnkvæmar heimildir aðila til að samnýta innviðaframkvæmdir, sbr. lög nr. 125/2019 um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraðafjarskiptaneta.

Til margra ára og fyrir tíð fyrrnefndra laga hefur Fjarskiptastofa hvatt veitufyrirtæki til þess að gefa fjarskiptafyrirtækjum tækifæri til þess að samnýta jarðvegframkvæmdir með því að veita upplýsingar um fyrirhuguð verkefni sem Fjarskiptastofa heldur utan um á vef stofnunarinnar: https://www.fjarskiptastofa.is/fjarskiptastofa/fjarskiptainnvidir/fyrirhugadar-jardvegsframkvaemdir/

Á þessari vefsíðu má nálgast á einum stað hlekki á framkvæmdaáætlanir Landsnets, Mílu, RARIK og Vegagerðarinnar auk þess sem birtar eru tilkynningar um jarðvegsframkvæmdir hjá sveitarfélögum sem hlotið hafa styrk hjá fjarskiptasjóði í tengslum við átak stjórnvalda um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026.

Fjarskiptastofa hvetur áfram öll veitufyrirtæki og sveitarfélög til þess að tilkynna um fyrirhugaðar jarðvegsframkvæmdir til Fjarskiptastofu og gefa fjarskiptafyrirtækjum þannig kost á að samnýta þær.