Fjarskiptastofa birtir stefnu um fyrirkomulag og framkvæmd eftirlits með net- og upplýsingaöryggi hjá fjarskiptafyrirtækjum, rekstraraðilum stafrænna grunnvirkja og veitendum stafrænnar þjónustu
Fjarskiptastofa birtir stefnu um fyrirkomulag og framkvæmd eftirlits með net- og upplýsingaöryggi hjá fjarskiptafyrirtækjum, rekstraraðilum stafrænna grunnvirkja og veitendum stafrænnar þjónustu
Fjarskiptastofa hefur sett sér stefnu um fyrirkomulag og framkvæmd eftirlits með netöryggi rekstraraðila stafrænna grunnvirkja, veitenda stafrænnar þjónustu og fjarskiptafyrirtækja. Kröfur til net- og upplýsingaöryggis, umgjörð áhættustýringar og viðbúnað eru settar fram í lögum nr. 78/2019, um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða (netöryggislaga) og XII. Kafla fjarskiptalaga nr. 70/2022.
Virkt stjórnkerfi netöryggis er grundvallaratriði til að bregðast við nýjum áskorunum og ógnum sem steðja að rekstri net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða í dag. Með skipulögðu og fyrirbyggjandi öryggisstjórnunarkerfi, þar sem áhersla er lögð á áhættumiðað nálgun geta aðilar leytast við að tryggja að öryggi þjónustusinnar með sem bestum hætti. Þetta ferli byggir á því að greina, meta og bregðast við áhættu á kerfisbundinn hátt. Markviss og gagnsæ stjórnsýsla á sviði áhættumiðaðs eftirlits gefur stjórnvöldum mikilvæga sýn að stöðu netöryggis mikilvægra innviða. Með reglulegum uppfærslum á eftirlitsstefnu, framkvæmd áhættumiðaðs eftirlits út frá stöðu aðila og stöðumynd ógna hverju sinni er lagður grunnur að elfdu netöryggi og auknum viðnámsþrótti þessara mikilvægu innviða samfélagsins.
Fjarskiptastofa setti sér fyrst stefnu um öryggi og virkni fjarskiptainnviða árið 2020 og síðan um fyrirkomulag og framkvæmd eftirlits á grundvelli netöryggislaga árið 2021. Verkefni stofnunnarinnar sem sett voru fram í þessum tveim stefnum hafa gengið vel. Hefur stofnunin t.a.m. lokið við framkvæmd heilstæðst áhættumats á mikilvægum fjarskiptainnviðum sem og framkvæmt sjálfsmat á stærstu fjarskitpafélögum hér á landi. Þá hefur stofnunin viðhaft virkt eftirlit með rekstraraðilum stafrænna grunnvirkja á grunvelli netöryggislaga, t.a.m. með framkvæmd sjálfsmata og dýpri úttekta. Stofnunin hefur nú sett sameiginlega stefnu á grundvelli þessara tveggja laga enda eru kröfur þeirra og aðferðafræði eftirlits mjög sambærileg.
Meginmarkmið eftirlits Fjarskiptastofu er að stuðla að auknu öryggi og viðnámsþrótti í net- og upplýsingakerfum eftirlitsskyldra aðila. Framkvæmd eftirlits er áhættumiðuð og er leytast við að hafa hana skilvirka og tímanlega fyrir stofnunina og eftirlitskylda aðila. Að auki er haft að leiðarljósi að eftirlit með net- og upplýsingaöryggi fjarskiptafyrirtækja og rekstraraðilum nauðsynlegrar þjónustu sé samræmt og að aðilar njóti jafnræðis.
Fjarskiptastofa fer með hlutverk ráðgefandi samhæfingarstjórnvalds gagnvart öðrum eftirlitsstjórnvöldum á grundvelli netöryggislaga svo samræmi og jafnræði allra aðila sé sem best tryggt við framkvæmd laganna. Hefur stofnunin gefið út leiðbeinandi tilmæli um framkvæmd eftirlits hvað það varðar.
Í febrúar og mars 2025 viðhafði Fjarskiptastofa samráð um stefnudrögin og bárust alls þrjár umsagnir. Niðurstaða yfirferðar var ekki tilefni til efnislegra breytinga en framsetning og orðalag var breytt á völdum stöðum til að bæta skýrleika og gagnsæi stefnunnar.
Niðurstöður úr samráði
Aukaskjöl: