Ekkert þak á smásöluverðlagningu fyrir reikiþjónustu í Bretland
Ekkert þak á smásöluverðlagningu fyrir reikiþjónustu í Bretland
Fjarskiptastofa hefur komist að þeirri niðurstöðu að Síminn hf. hafi ekki brotið gegn fjarskiptalögum með því að bjóða ekki viðskiptavinum sínum upp á innanlandsverðskrá (e. Roam Like Home) fyrir reikiþjónustu í Bretlandi. Stofnuninni barst kvörtun frá neytanda, þar sem kvartað var yfir því að Síminn hefði hætt að bjóða slíka þjónustu í kjölfar Brexit, á meðan bresk fjarskiptafyrirtæki bjóða sínum viðskiptavinum innanlandsverðskrá í reiki þegar þeir ferðast til Íslands. Þá var þess spurt hvort slík framkvæmd væri heimil samkvæmt 2. málsl. 3. mgr. 54. gr. fjarskiptalaga.
Í ákvörðun Fjarskiptastofu nr. 4/2025 er vísað til þess að evrópska reikireglugerðin eigi ekki lengur við um Bretland eftir útgöngu þess úr Evrópusambandinu. Bresk fjarskiptafyrirtæki eru því ekki lengur skyldug til að bjóða innanlandsverðskrá í reiki innan EES svæðisins og sömuleiðis þurfa fjarskiptafyrirtæki innan EES ekki að bjóða slíka gjaldskrá í Bretlandi.
Í 3. mgr. 54. gr. fjarskiptalaga kemur fram að þegar í gildi eru viðskiptasamningar við ríki utan EES skuli tekið mið af þeim hámarks smásöluverðum sem þar er kveðið á um. Ákvæðið á því ekki við um þann viðskiptasamning sem er í gildi milli Íslands og Bretlands, þar sem hann takmarkast við hámarksheildsöluverð og kveður ekki á um hámark smásöluverðs.
Niðurstaða Fjarskiptastofu var því sú að Síminn beri sjálfur ábyrgð á ákvörðun verðskrár og þjónustufyrirkomulags fyrir reikiþjónustu í Bretlandi. Í fjarskiptalögum er ekki að finna ákvæði sem skylda íslensk fjarskiptafyrirtæki til að veita sams konar skilmála og breskir þjónustuveitendur, né er þar kveðið á um kröfu um fulla gagnkvæmni í reikisamningum.
Í tengslum við þessa neytendakvörtun taldi Fjarskiptastofa vera tilefni til að kanna smásöluverðlagningu farnetsfyrirtækjanna hér á landi fyrir reikiþjónustu í Bretlandi. Niðurstöðurnar voru eftirfarandi:
Yfirlit heildsöluverða og smásölugjaldskráa (gengi SÍ 5. maí 2025) - kr/mín eða kr/GB
| Heildsala | Síminn * | Vodafone | Nova ** | Hringdu *** | |
| Móttekin símtöl | 0,00 kr | 9 kr | 9 kr | 0 kr | Skv. áskrift |
| Hringd símtöl | 4,68 kr | 40 kr | 40 kr | 9 kr | Skv. áskrift |
| Móttaka SMS | 0,00 kr | 0 kr | 0 kr | 0 kr | Skv. áskrift |
| Senda SMS | 1,46 kr | 20 kr | 32 kr | 9 kr | Skv. áskrift |
| Gagnamagn pr. GB | 365,75 kr | 10.000 kr | 12.000 kr | Að 1.780 kr | Innifalið lágmark skv. reikireglum |
* Síminn: Hringd símtöl gjaldfærð á 40 kr/mín vegna reikisímtals til Íslands eða innan Bretlands, 160 kr/mín vegna reikisímtals til annarra landa, þ.m.t. EES landa.
** Nova: Verð fyrir símtöl og SMS til Íslands, ýmsir pakkar af inniföldu gagnamagni með 24 klst fyrningartíma. Dýrast er 500MB á 890 kr (2x500MB = 1GB), en möguleiki á að inneign fyrnist án þess að koma að fullum notum.
*** Hringdu: Verð samkvæmt áskrift viðskiptavinar. Reglur „Roam Like at Home (RLAH)” eiga við um sanngjörn not og lágmarksinnifalið gagnamagn miðað við smásöluverð áskriftar.
Að lokum hyggst Fjarskiptastofa vekja athygli innviðaráðuneytisins á stöðu reikimála gagnvart íslenskum ferðamönnum í Bretlandi með það fyrir augum að skoðað verði hvort úrbóta sé þörf.