Hoppa yfir valmynd

Bráðabirgðaákvörðun FST um flutningsrétt Símans á dagskrá Sýnar staðfest með tilteknum breytingum

Fréttasafn
08. september 2025

Bráðabirgðaákvörðun FST um flutningsrétt Símans á dagskrá Sýnar staðfest með tilteknum breytingum

 Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstamála (ÚFP) hefur, í öllum megin atriðum, staðfest bráðabirgðaákvörðun FST um flutningsrétt Símans á tilteknum línulegum sjónvarpsútendingum Sýnar, dags. 30. júlí sl. með úrskurði sínum frá 4. september 2025, í kærumáli nr. 1/2025.

Með þessu er þeim neytendum sem kjósa að nálgast línulegt sjónvarpsefni Sýnar, þ.m.t. enska boltann, gert kleift að velja áfram um fjarskiptanet að eigin ósk, þ.m.t. um IPTV annarra fjarskiptafélaga, í stað þess að eiga ekki annan valkost en að skipta um dreifileið yfir á IPTV kerfi Sýnar eða að nota app frá Sýn í sama tilgangi, kjósi þeir að nálgast þetta efni.

Í niðurstöðu nefndarinnar voru gerðar ákveðnar breytingar varðandi gildistíma bráðabirgðaákvörðunarinnar og hann styttur. Voru breytingarnar innan marka þeirrar kröfugerðar sem FST lagði fram í kærumálinu. Nefndin kveður á um að bráðabirgðaákvörðunin skuli gilda til 1. desember nk. og að fyrir það tímamark skuli FST hafa leyst úr kröfum Símans í endanlegri efnisákvörðun um flutningsrétt Símans og framkvæmt kostnaðargreiningu um báða þætti málsins. Ef nauðsyn er á framlengingu ákvörðunarinnar vegna kostnaðargreininga til að ákvarða endanlegt verð fyrir flutninginn miðast slík framlenging við 1. febrúar 2026, en ekki 1. september 2026 eins og fram kom í bráðabirgðaákvörðuninni.

Krafa kæranda Sýnar byggði m.a. á meintum brotum FST á hinum ýmsu málsmeðferðarreglum stjórnsýsluréttar, svo sem rannsóknarreglu, andmælareglu, upplýsingarétti, meðalhófsreglu og jafnræðisreglu, auk þess sem tilteknir starfsmenn FST hefðu með framgöngu sinni í málinu gert sig vanhæfa. Þá byggði Sýn á að skilyrði fyrir töku bráðabirgðarákvörðunar hefðu ekki verið uppfyllt og að FST hefði lagt rangt mat á efnislega þætti málsins. ÚFP féllst ekki að neinu leyti á málástæður og lagarök kæranda sem vörðuðu formhlið málsins eða að skilyrði hefði ekki verið uppfyllt til töku umræddrar bráðabirgðaákvörðunar. Nefndin fjallaði hins vegar ekki um efnislega þætti málsins, enda er hin efnislega hlið málsins til rannsóknar hjá FST.

Í bráðabirgðaákvörðun sinni komst FST að þeirri niðurstöðu að skilyrði 4. mgr. 46. gr. fjölmiðlalaga, til töku bráðabirgðaákvörðunar í málinu, væru uppfyllt, þar sem hætta væri annars á að Síminn yrði fyrir verulegu fjártjóni. Úrskurðarnefnd staðfesti þetta mat og tók fram að FST hefði svigrúm til að meta það sem svo að Síminn hefði átt á hættu að verða fyrir fjártjóni ef bráðabirgðaákvörðun hefði ekki verið tekin. FST hefði hér byggt á heildarmati á því að nauðsynlegt væri að skoða nánar tæknilega þætti og samspil fjarskipta og fjölmiðla og miðaði ákvörðunin við að viðhalda sambærilegu ástandi og verið hefði í ákveðinn tíma meðan efnisleg málsmeðferð stæði yfir. Féllst nefndin á það með FST að það hefði getað valdið Símanum fjártjóni að aðhafast ekkert meðan aðilar kæmust ekki að samkomulagi, m.a. þar sem mikilvægir mánuðir fyrir fyrirtækin væru að ganga í garð. Taldi nefndin varhugavert að hnekkja slíku mati sérfræðistjórnvalds, enda yrði ekki séð að augljósir annmarkar væru á því.

Í ljósi fjölmiðlaumræðu um bráðabirgðaákvörðun FST undanfarið vill FST sérstaklega vekja athygli á framangreindum orðum úrskurðarnefndar um að bráðabirgðaákvörðun FST hefði miðað að því að viðhalda sambærilegu ástandi áfram og verið hefði í ákveðinn tíma á meðan málið væri til frekari meðferðar. Þarna er vísað til þess Síminn hafi veitt Sýn og Nova heimild til að dreifa enska boltanum síðustu 6 ár, þegar Síminn hélt á sýningarréttinum. Slík gagnkvæm dreifingarskylda hefur í raun tíðkast seinustu 20 árin hér á landi. Nefndin tiltekur þessi sjónarmið einnig í umfjöllun sinni um meint brot FST á meðalhófsreglunni. Taldi nefndin að ákvörðunin væri ekki of íþyngjandi fyrir Sýn þar sem félagið fengi greitt fyrir hvern notanda sem keypti aðgang að umræddu sjónvarpsefni á IPTV kerfi eða sjónvarpsappi Símans. Féllst nefndin því ekki á sjónarmið Sýnar um að ákvörðunin hefði verið úr hófi, þar sem eðlilegt þætti að ákveða sambærilegt fyrirkomulag og hefði verið í gildi í þessum málum þar til ítarlegri skoðun á markaðnum hefði farið fram. Opinber umræða bar þess merki í sumum tilvikum að þetta væri nýjung á íslenskum markaði sem hefði ekki tíðkast hér á landi né erlendis, og jafnvel að Síminn þyrfti ekki að greiða Sýn fyrir dreifingu og endursölu á áskriftarstöðvunum. Hvoru tveggja er augljóslega ekki rétt.

Einnig virðist hafa gætt nokkurs misskilning í almennri umræðu um að bráðabirgðaákvörðunin næði til annars efnis sem Sýn býður upp á, þ.m.t. ólínulegs efnis. Hið rétta er að hér er einungis átt við línulegt efni. Þjónusta Sýnar, t.d. á SÝN+ og ólínulegi hluti Viaplay, falla ekki undir þessa ákvörðun.

Þótt skilyrði til töku framangreindrar bráðabirgðaákvörðun hafi beinst að því að hætta væri á að Síminn, sem flutningsréttarbeiðandi í málinu, yrði fyrir verulega fjártjóni, eru undirliggjandi hagsmunir fyrir slíkum flutningsrétti fyrst og fremst hagsmunir neytenda. Markmið flutningsréttarákvæðisins kemur skýrt fram í greinargerð með frumvarpi því sem varð að fjölmiðlalögum nr. 38/2011, þ.e. að auka valfrelsi neytenda, bæði hvað varðar kaup á sjónvarpsefni og fjarskiptaþjónustu, og stuðla að samkeppni á sjónvarps- og fjarskiptamörkuðum. Neytendur ættu að geta valið um sjónvarpsefni eftir þeim fjarskiptaleiðum sem væru í boði án þess að tengjast mörgum dreifikerfum, auk þess sem það er sjálfstætt markmið með flutningsréttarreglunum að brjóta upp lóðrétt eignarhald á sjónvarpsefni og dreifingu þess, þ.e. að koma í veg fyrir að fyrirtæki sem bæði býður upp á fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu loki sjónvarpsefni inni á sínum dreifileiðum, en eins og fram kemur í greinargerð með fjölmiðlalögunum er hvatinn til slíks mikill hér á landi.

Flutningsréttarbeiðni Símans er nú til efnislegrar meðferðar hjá FST og verður þá skorið úr um það með stjórnvaldsákvörðun, eigi síðar en 1. desember nk., hvort beiðnin teljist eðlileg og sanngjörn. Síminn telur svo vera og telur mikilvægt að neytendur geti ennþá nálgast umrætt sjónvarpsefni á IPTV kerfi Símans, eins og verið hefur árum saman, sem og um sjónvarpsapp Símans, en Sýn telur svo ekki vera þar sem IPTV kerfi séu orðin úrelt og OTT lausn sú sem Sýn býður (sjónvarpsapp Sýnar), sem allir geta nálgast án endurgjalds, geri það að verkum að flutningsréttarbeiðni Símans uppfylli ekki skilyrði um að vera eðlileg og sanngjörn.     

Úrskurður ÚFP - mál nr. 1/2025