Hoppa yfir valmynd

Beiðni Símans um framlengingu á gildistíma tíðniheimildar á 900 MHz tíðnisviðinu

Fréttasafn
18. nóvember 2025

Beiðni Símans um framlengingu á gildistíma tíðniheimildar á 900 MHz tíðnisviðinu

Með erindi Símans til Fjarskiptastofu (FST), dags. 14. nóvember 2025, óskaði félagið eftir því að viðbótatíðniheimild félagsins fyrir 2x4,8 MHz á 900 MHz tíðnisviðinu (900,1-904,9/945,1-949,9 MHz) yrði framlengd til 30. júní 2026, en að óbreyttu rennur gildistími tíðniheimildarinnar út um áramótin.

Forsaga

Í niðurstöðuskjali samráðs Póst- og fjarskiptastofnunar (nú Fjarskiptastofa) um tíðnistefnu stofnunarinnar til áranna 2011-2014 var komist að þeirri niðurstöðu að það tíðnisvið sem Síminn vísar til skyldi koma til nýrrar úthlutunar með upphaf gildistíma á árinu 2017. Um leið yrði tíðniheimildin gerð tæknilega hlutlaus. Hið sama skyldi gegna um sams konar tíðniheimild Sýnar. Til aðgreiningar frá öðrum tíðniheimildum félaganna hafa þessar tvær heimildir verið kallaðar viðbótartíðniheimildir á 900 MHz tíðnisviðinu.

Þegar fór að líða að lokum gildistíma umræddra tíðniheimilda óskuðu bæði félögin eftir framlengingu á gildistíma heimildanna. Röksemdir félaganna voru m.a. að mun hagkvæmara og auðveldra væri að fasa út eldri farnetstækni með því að félögin fengju að halda óskertri tíðniúthlutun á 900 MHz. Af þessu tilefni efndi Póst- og fjarskiptastofnun til samráðs um þá ráðstöfun. Með formlegri og kæranlegri ákvörðun sinni nr. 7/2016 ákvað Póst- og fjarskiptastofnun að fallast á umsóknir Símans og Sýnar á framlengingu á gildistíma viðbótartíðnihildanna 13. febrúar 2022. Væntingar stóðu til þess að það tækist að fasa út 2G og 3G farnetstækni fyrir þann tíma, enda voru það fyrirætlanir tíðnirétthafanna sjálfra, sbr. fréttatilkynningu þess efnis á heimasíðu FST frá 23. nóvember 2022.

Miðað við þróun mála árin þar á eftir og þá reynslu sem fengist hefur, sbr. þá stöðu sem nú er uppi, verður að telja að áætlanir á þessu sviði hafi ekki gengið að fullu eftir eins og gert var ráð fyrir. Í niðurstöðu samráðs frá 9. desember 2021 um tímabundna framlengingu  á nær öllum gildandi tíðniréttindum til farnetsþjónustu í skamman tíma vegna fyrirséðra lagabreytinga var sú ráðstöfun einnig látin ná til viðbótartíðniheimildanna á 900 MHz. En nú með þeirri breytingu að tíðniréttöfum væri skylt að samnýta tíðnisviðin með Nova, ef eftir því væri óskað. Gildistími þessarar framlengingar skyldi gilda til 31. desember 2025.

Staðan nú

Nú liggur fyrir, eins og lýst er í erindi Símans, að félaginu muni ekki takast að fasa út eldri farnetstækni fyrir þann tíma, einkum 3G kerfið. Hefur félagið því farið fram á að fá framlengingu á gildistíma viðbótartíðniheimildar sinnar til 30. júní 2026. Það er skilningur Fjarskiptastofu að það sé ekki endilega ný tímasetning á lokunardegi 3G kerfisins hjá Símanum, þ.e. að það geti gerst fyrr ef að forsendur og aðstæður leyfa.

Til skýringar skal það nefnt að 4G og 5G hafa ekki fyrirfram skilgreinda talrás, eins og 2G og 3G. Til þess að 4G og 5G  símtæki geti nýtt sér talþjónustu þarf að virkja svo kallaða VoLTE stillingu í tækjunum, ef tækið á annað borð býður upp á það. Sé það ekki gert virkar talsímaþjónusta ekki í tækinu, þar með talið virka ekki símtöl í neyðarnúmerið 112. Fjarskiptastofa leggur höfuðáherslu á það að notendur farsímaþjónustu geti alltaf nálgast þjónustu neyðarnúmersins 112 sé þess nokkur kostur.

Skýringar Símans á því að útfösun á eldri farnetstækni, einkum 3G tækni, hafi tekið lengri tíma en áætlað var má draga saman í punktaformi:

  • Fjöldi viðskiptavina eru enn með nýleg 4G símtæki sem styðja ekki við VoLTE og/eða hafa ekki verið stillt með þeim hætti að VoLTE sé virkt á tækinu.
  • Þrátt fyrir töluverða mikla almenna umfjöllun, upplýsinga miðlun til viðskiptavina tengt lokun á 2G og  3G og leiðbeiningum um hvaða ráðstafanir þeir þurfi að grípa til í því skyni að forðast sambandsleysi hvað varðar talþjónustu við lokun kerfis, hafi ósamhæfðum símtækjum í notkun ekki fækkað svo nokkru nemi.
  • Frekari upplýsingagjöf þurfi að eiga sér stað til þessara viðskiptavina, en stærsta áskorunin sem Síminn stendur sérstaklega frammi fyrir sé að veita þessum aðilum fræðslu og leiðbeiningar um mál sem er bæði tæknilega krefjandi og flókið.
  • Ráðstafanir sem viðskiptavinir þurfa að gera eru einnig háðar ýmsum þáttum sem eru Símanum ókunnug, t.d. hvaða útgáfu af stýrikerfi (hugbúnaði) sé að finna í símtæki viðkomandi viðskiptavinar og hvort kveikt hafi verið á VoLTE í stillingum viðkomandi tækis.
  • Búast megi við miklu álagi á þjónustuveri Símans við að leiðbeina og aðstoða viðskiptavina til að gera nauðsynlegar ráðstafanir.

 

Það er álit Símans að ekki sé ráðlegt að halda óbreyttri tímaáætlun miðað við þær aðstæður sem uppi eru. Viðbúið sé að það gæti valdið röskun hjá stórum hópi notenda á þeim tíma árs þegar veðurskilyrði geta verið óblíð. Frestun á lokun 3G kerfisins um einhverja mánuði sé því almannaöryggismál og í þágu almannahagsmuna. Nánar er hægt að lesa um skýringar Símans á stöðunni sem nú er uppi og um rökstuðning fyrir því að þörf sé á framlengingu á gildistíma tíðniheimildarinnar í erindi félagsins, sem hægt er að nálgast hér að neðan.

Frumafstaða FST  

FST fellir engan dóm um það hvers vegna forsendur og áætlanir Símans fyrir útfösun á eldri farnetskerfum, einkum 3G kerfisins, hafi ekki gengið eftir. FST horfir eingöngu á stöðuna eins og hún er núna og hvernig sé rétt að bregðast við henni. Í þessu sambandi er mikilvægt að hafa í huga að ákvörðun um útfösun á eldri farnetskerfum 2G og 3G og tímaáætlun þeirrar framkvæmdar var alfarið í höndum farnetsfyrirtækjanna sjálfra.  Því er ekki um ræða að Síminn hafi brotið einhverjar kvaðir eða skyldur sem hvíla á félaginu þótt áætlanir félagsins hafi ekki gengið eftir. Gildistími tíðniheimildarinnar var einfaldlega sniðinn að þessari tímaáætlun.

Fyrir það fyrsta telur FST það vera áhyggjuefni að notendur skuli ekki bregðast betur við tilkynningum og leiðbeiningum Símans til viðskiptavina sinna. FST getur því tekið undir að Síminn þurfi að aðlaga framkvæmd sína til samræmis við það, t.d. með að gefa viðskiptavinum kost á að bóka heimsóknartíma í verslun eða símtal við þjónustufulltrúa, eins og nefnt er í erindi félagsins. Slíkt verður ekki gert, að áliti FST, á skömmum tíma í aðdraganda jóla.

Í annan stað er það álit FST að almennt beri að fasa út eldri fjarskiptanetum í afmörkuðum og öruggum skrefum, að fjarskiptafyrirtæki gefi sér þann tíma sem þarf til að meta áhrif og afleiðingar á útbreiðslu í hverju skrefi og gæði þjónustunnar sem kemur í staðinn. Það sé fyrst gert áfangaskipt eftir landssvæðum áður en kerfi er lokað á landsvísu í einum vetfangi með miðlægri kerfisaðgerð. Miðað við upplýsingar á heimasíðu Símans er þannig staðið að verki af hálfu félagsins. Með tilliti til þessa hefur FST beitt sér fyrir því á síðustu árum að tíðnirétthafar hafi fengið aukinn aðgang að tíðnisviðum til að gera útfösun hagkvæmari og að einhverju leyti öruggari. FST hefur ekki beitt farnetsfyrirtæki þrýstingi um að leggja niður eldri farnetskerfi, heldur hefur stofnunin í tvígang framlengt tíðniheimildir í þessum tilgangi.

FST getur tekið undir með Símanum um að talsvert stór hópur viðskiptavina félagsins geti orðið fyrir neikvæðum afleiðingum við lokun 3G kerfisins. Þá er umfang afleiðinganna óþekkt og geta þær mögulega bitnað misjafnlega á notendum, t.d. eftir búsetu, tæknilega færni þeirra og möguleikum þeirra til að uppfæra og kaupa ný símtæki. Að áliti FST er ekki rétt að láta gildistíma viðbótartíðniheimild Símans renna út um áramót og knýja þannig fram „harða“ lokun á 3G kerfi félagsins með ófyrirséðum afleiðingum. Lokun kerfisins mun mögulega valda einhverri röskun á þjónustu tímabundið. Þá sé betra að takast á við slíkar afleiðingar við betra tíðarfar. Fjarskiptastofa ítrekar að horft skuli sérstaklega til þess að notendur farsíma geti hringt í neyðarnúmerið 112. FST getur því fallist á sjónarmið Símans að frestun lokunar 3G kerfisins, miðað við þá stöðu sem nú er uppi, sé öryggismál og í þágu almannahagsmuna.

Í þessu samhengi áskilur FST sér einnig rétt til þess að mæla fyrir um það í skilmálum tíðniheimildar að Síminn skuli frá og með 1. janúar 2026 ekki nýskrá farnetsnotendur ef fyrirtækinu má vera ljóst að þeir muni einungis nota 2G eða 3G tækni, enda tíðniheimildinni ætlað að stuðla að útfösun þeirrar tækni.

Samkvæmt öllu framangreindu hyggst FST samþykkja beiðni Símans um að framlengja gildistíma viðbótartíðniheimild félagsins á 900 MHz tíðnisviðinu til 30. júní 2026.   

Samráð og málsmeðferð

FST þykir rétt að upplýsa hagaðila um fram komna beiðni Símans og gefa þeim tækifæri til að tjá sig um hana og fyrirhugaða ákvörðun FST. Þess skal getið að Sýn býðst að fá framlengingu á sinni viðbótartíðniheimild á 900 MHz til sama tíma, ef eftir því verður óskað fyrir lok gildistíma heimildarinnar. Það sama á við um rétt Nova til samnýtingar á viðbótartíðniheimildunum til útfösunar á 3G tækni, ef með þarf.

Ef fram koma sjónarmið sem varða réttindi og skyldur aðila, sem FST telur rétt að taka rökstudda afstöðu til, að þá verður það gert með formlegri og kæranlegri ákvörðun, eins og gert var með ákvörðun nr. 7/2016, enda njóti umsagnaraðili aðilastöðu stjórnsýslumáls.

Frestur til að gera athugasemdir við fyrirhugaða ákvörðun FST, um að framlengja gildistíma  viðbótartíðniheimild Símans á 900 MHz tíðnisviðinu til 30. júní 2026, er veittur til 26. nóvember 2025.

Beiðni Símans til FST um framlengingu á tíðniheimild