Hoppa yfir valmynd

Ársskýrsla Fjarskiptastofu fyrir árið 2025 er komin út

Fréttasafn
26. júní 2026

Ársskýrsla Fjarskiptastofu fyrir árið 2025 er komin út

Í skýrslunni er m.a. fjallað um helstu lykiltölur úr starfi stofnunarinnar, stöðu netöryggis á Íslandi, örar framfarir í tækni og þróun fjarskiptamarkaðarins.

Í inngangi forstjóra kemur m.a. fram: "Árangurinn í uppbyggingu fjarskiptaneta hér á landi má m.a. rekja til heildstæðrar stefnumótunar snemma á þessari öld.
Nú stöndum við á krossgötum. Fjarskiptanet landsins eru á heimsmælikvarða og fram undan er stafræn vegferð samfélagsins með þeim kostum, áskorunum, ógnum og tækifærum sem henni fylgja. Næsti áfangi er að festa í sessi þann árangur sem náðst hefur og tryggja að almenningur og fyrirtæki njóti góðs af skilvirkri innleiðingu EES-regluverks um hið stafræna samfélag."

Þessa nýjustu ársskýrslu og annað útgefið efni Fjarskiptastofu má finna á vef stofnunarinnar  undir útgefið efni.

Ársskýrslan 2025