Ársskýrsla Fjarskiptastofu fyrir árið 2024 er komin út
Ársskýrsla Fjarskiptastofu fyrir árið 2024 er komin út
Í skýrslunni er m.a. fjallað um helstu lykiltölur úr starfi stofnunarinnar, stöðu netöryggis á Íslandi, örar framfarir í tækni og þróun fjarskiptamarkaðarins.
Í inngangi forstjóra kemur m.a. fram: "Grundvöllur netvarna hvílir á samfélagslega mikilvægum fyrirtækjum og stofnunum hérlendis sem gera virkar ráðstafanir til að tryggja netöryggi sitt með fyrirbyggjandi aðgerðum m.a. í samræmi við netöryggisregluverkið. Netvarnir ríkja hvíla því ekki síður á þessum aðilum en varnarmálatengdum aðilum. Borgaralegt netöryggisregluverk er því í raun grundvöllur varnarmálatengdrar nálgunar netöryggis. Hlutverk ríkisins er m.a. að tryggja að skilgreindir mikilvægir innviðir innleiði í raun viðeigandi fyrirbyggjandi aðgerðir í samræmi við netöryggisregluverkið. Það er hlutverk Fjarskiptastofu að fylgja því eftir varðandi fjarskiptafyrirtækin og stafræna þjónustuveitendur."
Þessa nýjustu ársskýrslu og annað útgefið efni Fjarskiptastofu má finna á vef stofnunarinnar undir útgefið efni.