Ársskýrsla Fjarskiptastofu fyrir árið 2023 er komin út
Ársskýrsla Fjarskiptastofu fyrir árið 2023 er komin út
Ársskýrsla Fjarskiptastofu fyrir árið 2023 er komin út.
Í skýrslunni er m.a. fjallað um helstu lykiltölur úr starfi stofnunarinnar, stöðu netöryggis á Íslandi, örar framfarir í tækni og þróun fjarskiptamarkaðarins.
Í inngangi forstjóra kemur m.a. fram: "Við lifum á tímum tæknibyltinga sem vart eiga sér fordæmi. Almenn fjarskiptanet, bæði fastanet og farnet, eru orðin svo hraðvirk og aðgengileg að tengihraði hindrar sjaldnast útfærslu tæknilausna sem nú eru aðgengilegar almenningi, m.a. í skýinu. Gervigreind hefur tekið gríðarlegum framförum og er því spáð að gervigreind muni nálgast mannlega getu, eða fari jafnvel fram úr henni, fyrir miðja öldina. Nú er almennt talið að þróaðar skammtatölvur verði aðgengilegar fyrir miðja þessa öld, jafnvel á næsta áratug."
Þessa nýjustu ársskýrslu og annað útgefið efni Fjarskiptastofu má finna á vef stofnunarinnar undir útgefið efni.