Yfirlit PFS vegna bókhaldslegs aðskilnaðar hjá Íslandspósti
Yfirlit PFS vegna bókhaldslegs aðskilnaðar hjá Íslandspósti
Megin niðurstaða stofnunarinnar var að kostnaðarbókhald og bókhaldslegur aðskilnaður Íslandspósts byggi á viðurkenndri aðferðarfræði sem sé í samræmi við ákvæði laga nr. 19/2002 um póstþjónustu og reglugerð nr. 313/2005 um bókhaldslega og fjárhagslega aðgreiningu í rekstri póstrekanda.
Stofnunin beindi einnig 11 tilteknum fyrirmælum til Íslandspósts í tengslum við kostnaðarbókhald félagsins og hefur fyrirtækið unnið að innleiðingu þeirra síðan.
Eitt af þeim atriðum sem gerð var athugasemd við voru forsendur og útreikningar Íslandspósts á kostnaði vegna alþjónustukvaða, en félagið leiðrétti kostnaðarbókhald félagsins með svokölluðum leiðréttingarfærslum. Í ákvörðuninni kom einnig fram að stofnunin tæki enga afstöðu til þess á þessu stigi hvort kostnaður Íslandspósts af alþjónustu væri meiri eða minni en sú upphæð sem millifærð væri í kostnaðarbókhaldi félagsins.
Íslandspóstur ákvað að fara út í smíði nýs LRAIC kostnaðarlíkans, m.a. til að innleiða þau fyrirmæli sem fram komu í ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar. Líkanið og forsendur þess hafa verið til skoðunar hjá stofnuninni, en það hefur m.a. að geyma nýtt heildarmat á kostnaði vegna alþjónustuskyldu félagsins vegna ársins 2013.
Á grundvelli þeirra upplýsinga sem koma fram í LRAIC líkani Íslandpósts telur Póst- og fjarskiptastofnun að fullnægjandi upplýsingar liggi nú fyrir um að forsendur hafi verið fyrir a.m.k. 300 millj. kr. leiðréttingarfærslum frá samkeppnisrekstri yfir á einkarétt á árinu 2011 vegna mats á alþjónustubyrði í kostnaðarlíkani (ABC líkani) félagsins, enda náði líkanið ekki að fanga alþjónustubyrði félagsins, sérstaklega vegna kostnaðar við landpóstadreifingu og reksturs afgreiðslunets fyrirtækisins.
Með þessu getur Póst- og fjarskiptastofnun staðfest réttmæti bókhaldslegs aðskilnaðar Íslandspósts á árinu 2011, þar sem rekstrar- og fjárfestingarkostnaður er staðfærður með viðurkenndum hætti í kostnaðarbókhaldi félagsins.
Af ofangreindu leiðir að bókhaldslegur aðskilnaður og
kostnaðarbókhald ÍSP samkvæmt hinu eldra ABC kostnaðarlíkani mun ekki
koma til frekari skoðunar af hálfu PFS.
Póst- og fjarskiptastofnun vinnur að úttekt á bókhaldslegum aðskilnaði
Íslandspósts fyrir árin 2013 og 2014 og er gert ráð fyrir að þeirri
vinnu ljúki á árinu.
Sjá nánar:
Yfirlit PFS vegna bókhaldslegs aðskilnaðar Íslandspósts á grundvelli ABC kostnaðarlíkans sem notað var til loka ársins 2012 (PDF skjal)