Vodafone hefur lokið uppbyggingu á dreifikerfi fyrir stafrænt sjónvarp á UHF tíðnisviði
Fréttasafn
17. október 2007
Vodafone hefur lokið uppbyggingu á dreifikerfi fyrir stafrænt sjónvarp á UHF tíðnisviði
Vodafone hefur tilkynnt Póst- og fjarskiptastofnun að fyrirtækið hafi lokið uppbyggingu á dreifikerfi fyrir stafrænt sjónvarp DVB-T, á UHF tíðnisviði.
365 ljósvakamiðlum, nú Og fjarskipti ehf. (Vodafone), var úthlutað tveimur UHF rásum í júní 2005 að loknu útboði.
Í útboðslýsingu voru settar fram kröfur um að bjóðendur skyldu tryggja að uppbygging á dreifikerfi til 98% landsmanna yrði lokið innan tveggja ára.