Verðathugun PFS: Öll íslensk fjarskiptafyrirtæki með reikiverð innan marka
Verðathugun PFS: Öll íslensk fjarskiptafyrirtæki með reikiverð innan marka
Póst- og fjarskiptastofnun hefur gert athugun á því hvort íslensk fjarskiptafyrirtæki hafi lagað verðskrá sína að gildandi reglugerð ESB um hámarksverð á farsíma- og netlyklanotkun milli landa í Evrópu. Reglugerðin gildir á EES svæðinu.
Þann 1. júlí sl. tóku gildi ný hámarksverð til neytenda fyrir reiki innan Evrópu. Verðþökin eru samkvæmt reglugerð ESB sem hefur verið innleidd í EES samninginn sem Ísland er aðili að. Því gildir reglugerðin einnig fyrir íslenska neytendur. Hámarksverð á reikiþjónustu hafa verið lækkuð í þrepum allt frá árinu 2007 þegar fyrsta reglugerðin tók gildi. Til að byrja með voru eingöngu sett verðþök á símtöl en æ fleiri þættir reikiþjónustu hafa bæst við, nú síðast gagnamagnsnotkun sem bættist við með reglugerð sem tók gildi í júlí 2012. Síðan þá hafa verðþökin verið lækkuð jafnt og þétt þar til í sumar þegar eftirfarandi verð tóku gildi. Þau verða óbreytt þar til gildistíma reglugerðarinnar lýkur, eða til og með 30. júní 2017.
Hámarksverð á reiki innan EES svæðisins frá 1. júlí 2014
| Að hringja |
Að svara |
Sent SMS |
Móttaka SMS | MB |
|---|---|---|---|---|
| 37,04 kr. | 9,74 kr. | 11,69 kr. | frítt | 38,99 |
Eins og taflan hér fyrir neðan sýnir leiddi athugun PFS í ljós að allir íslenskir farsímarekendur hafa sett verðskrár sínar fyrir reiki við eða undir gildandi verðþök:
| Að hringja | Að svara |
Sent SMS | Móttaka SMS | MB | |
|---|---|---|---|---|---|
| Síminn | 36,90 kr. | 9,50 kr. | 11,50 kr. | frítt | 38,90 kr. |
| Vodafone | 37,04 kr. | 9,74 kr. | 11,69 kr. | frítt | 38,99 kr. |
| Nova | 37,03 kr. | 9,74 kr. | 11,68 kr. | frítt | 38,84 kr. |
| Tal | 36,40 kr. | 9,50 kr. | 11,50 kr. | frítt | 38,30 kr. |
| Alterna | 37,03 kr. | 9,73 kr. | 11,68 kr. | frítt | 38,98 kr. |
| Símafélagið | 37,03 kr. | 9,73 kr. | 11,68 kr. | frítt | 38,98 kr. |
| Hringdu | 36,90 kr. | 9,50 kr. | 10,50 kr. | frítt | 38,50 kr. |
| Hringiðan | 37,03 kr. | 9,73 kr. | 11,69 kr. | frítt | 38,98 kr. |
Samkvæmt reglugerðinni eru reikisímtöl innan EES svæðisins reikningsfærð þannig að gjald er tekið fyrir 30 sekúndur við upphaf símtals og að þeim tíma loknum er gjaldmælt fyrir hverja sekúndu (30/1).
Sjá nánar hér á vefnum um notkun farsíma, 3G og 4G í útlöndum
Sjá einnig reglugerð ESB Nr. 531/2012 um reiki á almennum farsímanetum (PDF, á íslensku)
Upplýsingasíða ESB fyrir neytendur um farsímanotkun milli landa í Evrópu