Útboðsauglýsing - Útgáfa tíðniheimilda fyrir GSM 1800 farsímakerfi
Útboðsauglýsing - Útgáfa tíðniheimilda fyrir GSM 1800 farsímakerfi
Póst- og fjarskiptastofnun mun með heimild í 9.gr., sbr. 11.gr. laga um fjarskipti nr 81/2003, veita tíðniheimildir til starfrækslu tveggja nýrra farsímaneta skv. viðurkenndum GSM stöðlum, að undangenginni auglýsingu og vali milli umsækjenda sem byggt verður á skilmálum sem fram koma hér á eftir. Allt að tveimur umsækjendum verður úthlutað tíðnum.
Sérhver tíðniheimild gildir fyrir allt landið og mun fela í sér eitt eftirtalinna tveggja tíðnisviða, sem hvert um sig er samtals 2 x 7,4 MHz , alls 14,8 MHz:
1) 1751,1-1758,5 MHz / 1846,1-1853,5 MHz
2) 1758,7-1766,1 MHz / 1853,7-1861,1 MHz
Afhenda skal umsóknir í afgreiðslu Póst- og fjarskiptastofnunar bæði á pappírs- og tölvutæku formi.
Nánari upplýsingar og skilmála er að finna í útboðslýsingu – sjá neðar.
Einnig má fá útboðslýsingu á skrifstofu Póst- og fjarskiptastofnunar, Suðurlandsbraut 4, Reykjavík.
Hér fyrir neðan má sækja Excel-skjal , sem reiknar út stigafjölda tilboða sem fall af útbreiðslu og hraða uppbyggingar, sem umsækjandi skuldbindur sig til að ná með tilboði sínu.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Póst- og fjarskiptastofnunar, eigi síðar en þriðjudaginn 3. apríl 2007 kl 11:00. Verða tilboð þá opnuð að viðstöddum fulltrúum þeirra umsækjenda sem þess óska. Lesin verða upp nöfn umsækjenda ásamt tilboðsblaði með stigaútreikningi, sbr. viðauka 1 í útboðslýsingu.
Útboðslýsing (PDF)
Útreikningur stiga í útboðslýsingu (Excel skjal)
Samráð vegna útboðs – samantekt á svörum (PDF)
Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, s. 510-1500, t-póstur:hrafnkell@pfs.is