Útboðsauglýsing -Útboð á tíðniheimild fyrir farsímakerfi á 450 MHz
Útboðsauglýsing -Útboð á tíðniheimild fyrir farsímakerfi á 450 MHz
Póst- og fjarskiptastofnun mun með heimild í 9.gr., sbr. 11.gr. laga um fjarskipti nr 81/2003 gefa út tíðniheimild til starfrækslu farsímanets á núverandi NMT tíðnisviði, að undangenginni auglýsingu og vali milli umsækjenda sem byggt verður á skilmálum sem fram koma hér á eftir.
Aðeins einum umsækjanda verður úthlutað tíðnum.
Tíðniheimildin gildir fyrir allt landið og felur í sér eftirfarandi tíðnisvið:
452,9875 - 457,4875 MHz / 462,9875 – 467,4875 MHz (2 x 4,5 MHz)
Afhenda skal umsóknir í afgreiðslu Póst- og fjarskiptastofnunar bæði á pappírs- og tölvutæku formi.
Nánari upplýsingar og skilmála er að finna í útboðslýsingu – sjá neðar
Einnig má fá útboðslýsingu á skrifstofu Póst- og fjarskiptastofnunar, Suðurlandsbraut 4, Reykjavík.
Hér fyrir neðan má sækja kort af Íslandi, sem sýnir kröfur um útbreiðslu á hafsvæðinu umhverfis Ísland, sbr. kafla 1.3 í útboðslýsingu .
Tilboðum skal skila á skrifstofu Póst- og fjarskiptastofnunar, eigi síðar en mánudaginn 7. maí 2007 kl. 11:00. Verða tilboð þá opnuð að viðstöddum fulltrúum bjóðenda, sem þess óska. Lesin verða upp nöfn bjóðenda ásamt upplýsingum um skuldbindingar umfram lágmarkskröfur, sbr. viðauka 1 í útboðslýsingu.
Útboðslýsing (PDF)
Kort af Íslandi með útbreiðslu á hafsvæðinu umhverfis Ísland (viðauki 2)
Samráð vegna útboðs – samantekt á svörum (PDF)
Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, s. 510-1500, t-póstur:hrafnkell@pfs.is