Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála (ÚFP) hefur staðfest ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS) nr. 13/2018.
Fréttasafn
Málavextir voru þeir að bréf höfðu skemmst í flokkunarvél Íslandspósts ohf. (ÍSP) og tilkynnti fyrirtækið kvartanda um það sem og ástæður þess. Kvartandi kvartaði til PFS vegna þessarar afgreiðslu og taldi m.a. að stofnunin ætti að rannsaka málið frekar.
Stofnunin tilkynnti ÍSP um framkomna kvörtun og kæranda um að stofnunin teldi ekki eðlilegt að sendingar skemmdust, en óhöpp gætu þó orðið. Kærandi var einnig upplýstur um að ekki væri skylt að greiða skaðabætur í tilviki sem þessu, sbr. 39. gr. laga um póstþjónustu.
Kærandi kærði afgreiðslu stofnunarinnar á kvörtuninni til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála. Í úrskurði nefndarinnar eru ekki gerðar athugasemdir við mat PFS að málið hafi talist upplýst þegar kæranda var tilkynnt um að stofnunin hygðist loka því, enda lá fyrir að ekki var ágreiningur um að umrædd bréf skemmdust í meðförum ÍSP. Jafnframt vísaði nefndin til þess að ÍSP hafði tilkynnt kæranda um að umrædd bréf hefðu skemmst og um ástæður þess. Málsmeðferð PFS við töku hinnar kærðu ákvörðunar hafi því verið í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga.
Sjá úrskurðinn í heild.
18. desember 2018