Umsókn Neyðarlínunnar um framlag úr jöfnunarsjóði alþjónustu samþykkt
Fréttasafn
16. mars 2017
Umsókn Neyðarlínunnar um framlag úr jöfnunarsjóði alþjónustu samþykkt
Póst- og fjarskiptastofnun hefur samþykkt umsókn Neyðarlínunnar ohf. um framlag úr jöfnunarsjóði alþjónustu fyrir árið 2017 að upphæð kr. 64.763.629. Skal framlagið greiðast með fyrirvara um heimild í fjárlögum.
Um er að ræða framlag vegna talsímaþjónustu á sviði neyðarþjónustu og neyðarsímsvörunar sem Neyðarlínunni hefur verið gert skylt að veita.
Sjá ákvörðunina í heild:
Ákvörðun PFS nr. 4/2017 - Umsókn Neyðarlínunnar ohf. um framlag úr jöfnunarsjóði fyrir árið 2017