Tölfræðiskýrsla um íslenskan fjarskiptamarkað 2007
Fréttasafn
07. ágúst 2008
Tölfræðiskýrsla um íslenskan fjarskiptamarkað 2007
Póst- og fjarskiptastofnun birtir nú í annað sinn tölfræðiskýrslu um íslenskan fjarskiptamarkað. Í skýrslunni er að finna ítarlegar upplýsingar um fjarskiptamarkaðinn fyrir árin 2005 – 2007. Skýrslunni er skipt upp eftir fastanetinu, farsímanetinu, internetinu og veltu og fjárfestingu á fjarskiptamarkaði.