Tap Mílu vegna alþjónustu ekki metin ósanngjörn byrði á félagið
Tap Mílu vegna alþjónustu ekki metin ósanngjörn byrði á félagið
Með ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar (hér eftir PFS) nr. 25/2018 komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að Míla myndi mögulega loka fyrir aðgang á alls 97 símstöðvum, ef ekki væri fyrir hendi kvöð um að útvega tengingar í samræmi við ákvæði laga um alþjónustu.
Einnig var það niðurstaða stofnunarinnar að tap félagsins vegna alþjónustuskyldunnar væri eftirfarandi:
Beinn nettókostnaður er 121.036.950 kr.
Markaðsávinningur frádreginn -54.289.967 kr.
Nettókostnaður samtals: 66.746.983 kr.
Forsenda fyrir því að tapið sé greitt úr jöfnunarsjóði alþjónustu er að tapið sé metið ósanngjörn byrði á Mílu í skilningi 1. mgr. 21. gr. laga um fjarskipti nr. 81/2003. Fram kom í ákvörðuninni að það mat yrði tekið fyrir í sérstakri ákvörðun.
Með ákvörðun PFS nr. 19/2019, sem nú er birt, var það niðurstaða stofnunarinnar að nettókostnaður Mílu að upphæð 66.746.983 kr. væri ekki ósanngjörn byrði á Símasamstæðunni í skilningi 1. mgr. 21. gr. laga um fjarskipti nr. 81/2003. Sbr. einnig reglugerð nr. 1356/2007 um alþjónustu á sviði fjarskipta, þ.e. hvort tapið hafi veruleg áhrif á rekstrargetu fyrirtækisins og samkeppnismöguleika eða stofni efnahag þess í hættu.
Niðurstaða stofnunarinnar byggði m.a. á samanburði á nettókostnaði við nokkur þekkt fjárhagsleg viðmið sem höfð voru til hliðsjónar við mat á því hvort alþjónustubyrði Símasamstæðunnar væri ósanngjörn eða ekki, en þau voru eftirfarandi:
| Allar upphæði eru í milljónum króna | Samstæða alls: | Þar af fastasambönd: | |
| Nettókostnaður (byrði) | 67 | 67 | |
| Rekstrartekjur | 28.433 | 14.797 | |
| Nettókostnaður (byrði) sem hlutfall af rekstrartekjum | 0,24% | 0,45% | |
| Hagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta (EBIT) | 4.919 | 2.560 | |
| Nettókostnaður (byrði) sem hlutfall af EBIT hagnaði | 1,36% | 2,62% | |
| Arðsemi fjármagns | 9,1% | 9,1% | |
| Hækkun arðsemi ef engar alþjónustuskyldur | 0,12% | 0,24% | |
| WACC (Míla/Síminn) | 9,0% | 9,3% |
Ofangreindar niðurstöður voru einnig bornar saman við hliðstæðar tölur við sambærilegt mat sem gert var af systurstofnun PFS í Írlandi þar sem því hafði verið hafnað að reiknaður nettókostnaður sem hvíldi á Eircom væri ósanngjörn byrði á félaginu. Sá samanburður sýndi að allar tölur hér á landi varðandi byrði væru lægri en sambærilegar tölur á Írlandi.
Sjá nánar ákvörðun PFS nr. 19/2019 - Umsókn Mílu ehf. um framlag úr jöfnunarsjóði alþjónustu, ósanngjörn byrði