Staðan á fjarskipta- og póstmálum á landsvísu
Fréttasafn
Talsverð aukning hefur orðið á umferð í fjarskiptakerfunum, bæði í fastanetum og farnetum. Þá hafa símtöl aukist mikið en SMS sendingum virðist fækka. Enn er talsverð umfram afkastageta í fjarskiptakerfunum og ekki ástæða til að hafa áhyggjur að svo stöddu. Enn má því segja að fjarskiptakerfi landsins virki vel á landsvísu.
PFS og fjarskiptafélögin munu halda áfram með vikulega fjarfundi og aukafundir verða settir á eftir þörfum.
Póstþjónusta hefur að mestu gengið með venjubundnum hætti um allt land. Þó hafa komið upp nokkur tilvik þar sem hefur þurft að gera breytingar á þjónustu á einstökum stöðum og eru þær breytingar tilkynntar jafnóðum á heimasíðu Íslandspósts.
https://www.posturinn.is/frettir/#category=1607&month=0&page=1&year=all
https://www.posturinn.is/posturinn/upplysingar/covid-19/
27. mars 2020