Síminn hækkar mínútuverð fyrir notkun fastasíma
Fréttasafn
02. júlí 2007
Síminn hækkar mínútuverð fyrir notkun fastasíma
Frá og með 1. júlí hækkaði Síminn verð þegar talað er milli heimasíma (fastasíma) úr 1,75 kr í 1,85 kr á mínútuna, eða um 5,7%. Jafnframt hækkar verð fyrirtækisins þegar hringt er úr heimasíma í GSM hjá Símanum úr 16 kr. í 17. kr á mínútuna eða um 6,25%.
PFS birtir mánaðarlega verðsamanburð á fjarskiptaþjónustu hér á vefnum.