Póst- og fjarskiptastofnun synjar Íslandspósti hf. um gjaldskrárhækkun
Póst- og fjarskiptastofnun synjar Íslandspósti hf. um gjaldskrárhækkun
Póst- og fjarskiptastofnun hefur birt ákvörðun sína nr. 30/2010, þar sem hafnað er beiðni fyrirtækisins um hækkun á gjaldskrá bréfa innan einkaréttar.
Beiðni Íslandspósts var rökstudd í fjórum liðum: Frestun verðskrárbreytinga frá 1. janúar 2010 til 1. mars 2010, auknir afslættir skv. bráðabirgðaákvörðun Samkeppniseftirlitsins, hækkun tryggingagjalds á árinu 2010 og frestun innleiðingar svokallaðs XY dreifkerfis með tilheyrandi frestun á lækkun kostnaðar.
Í niðurstöðu PFS vísaði stofnunin m.a. til þess að þó svo að gildistaka síðustu verðskrárbreytinga hefði orðið síðar en áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir ætti það ekki að leiða til þess að félaginu yrði bættur sá tekjumissir, enda hafi málsmeðferð stofnunarinnar á þeirri hækkunarbeiðni verið innan eðlilegra tímamarka. Þá fæli beiðni um hækkun gjaldskrár í sér að verið væri að bæta Íslandspósti tiltekin afsláttarkjör, sem fyrirtækið taldi sig skylt að veita í kjölfar bráðabirgðaákvörðunar Samkeppniseftirlitsins, án þess að sýnt hefði verið fram á þau hefðu skilað sér í auknu kostnaðarhagræði fyrir Íslandspóst. Með því móti væri í raun verið að velta kostnaðinum með beinum hætti yfir á notendur þjónustunnar, þ.á.m. almenning. Einnig vísaði PFS til þess að þegar hefði verið tekið tillit til hækkunar tryggingagjalds með hækkun gjaldskrár samkvæmt ákvörðun nr. 4/2010. Þá taldi PFS að hagræðið af fyrirhuguðum breytingum Íslandspósts á dreifingu pósts yrði ekki metið nema fyrir lægi ítarleg greining á undirliggjandi kostnaði fyrirtækisins, fyrirkomulagi afsláttar o.fl.
Með tilliti til alls þessa var beiðni fyrirtækisins hafnað. Á hinn bóginn vísaði stofnunin til þess að verið væri að fara yfir nýja skilmála og gjaldskrá Íslandspósts, sbr. erindi fyrirtækisins, dags. 28. júní 2010.