Hoppa yfir valmynd

Póst- og fjarskiptastofnun fellst á að breytingar verði gerðar á uppbyggingarkröfum tíðniheimildar 365 miðla ehf.

Fréttasafn
08. janúar 2016

Póst- og fjarskiptastofnun fellst á að breytingar verði gerðar á uppbyggingarkröfum tíðniheimildar 365 miðla ehf.

Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur tekið ákvörðun nr. 37/2015 þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að forsendur séu fyrir því að gerðar verði breytingar á 2. gr. tíðniheimildar A á 800 MHz tíðnisviðinu sem 365 miðlar ehf. hlutu í uppboði stofnunarinnar á tíðnisviðinu í ársbyrjun 2013.

Í 2. gr. tíðniheimildar A eru gerðar veigamiklar útbreiðslu- og uppbyggingarkröfur um 4G þjónustu en skv. henni skal félagið bjóða 99,5% lögheimila og vinnustaða á öllum landssvæðum háhraða farnetsþjónustu með 10 Mb/s gagnamagnshraða fyrir árslok 2016 og 30 Mb/s gagnamagnshraða fyrir árslok 2020.

PFS barst erindi frá 365 miðlum ehf. þann 10. apríl sl. þar sem óskað var eftir tilslökun á framangreindum kröfum. Byggði félagið beiðni sína á 1. mgr. 12. gr. fjarskiptalaga nr. 81/2003 og taldi, í fyrsta lagi, að heimilað samstarf Fjarskipta hf. og Nova ehf. til uppbyggingar á sameiginlegu dreifikerfi félaganna, og í örðu lagi, skýrsla starfshóps innanríkisráðherra Ísland ljóstengt, fæli í sér forsendubrest fyrir þeirri uppbyggingu sem félagið tók á sig í uppboði stofnunarinnar á tíðniheimild A.

Í ákvörðun sinni sem nú er birt fellst PFS ekki á að samstarf Fjarskipta hf. og Nova ehf. hafi áhrif á forsendur uppbyggingarkrafna tíðniheimildarinnar. Aftur á móti telur stofnunin að fjárlög fyrir árið 2016, þar sem yfir 500 milljónum króna er varið til fjarskiptasjóðs til uppbyggingar á ljósleiðarneti á landsbyggðinni, feli í sér breytingar á forsendum sem lágu að baki þeim útbreiðslu- og uppbyggingarkröfum sem gerðar voru í uppboði stofnunarinnar. Kemst stofnunin einnig að því að það falli að lögbundnum verkefnum hennar, um örvun samkeppni og skilvirkni í uppbyggingu fjarskiptainnviða, neytendum til hagsbóta, að fallast á að ákveðnar tilslakanir verði gerðar á kröfum tíðniheimildarinnar.
Ekki er þó fallist á tillögu félagsins um einfalda breytingu á 2. gr. tíðniheimildarinnar heldur mun stofnunin birta viðauka við tíðniheimildina fyrir 20. janúar nk. þar sem settar verða fram nýjar áfangaskiptar uppbyggingarkröfur, þvingunarúrræði o.fl.

Sjá ákvörðunina í heild:

Ákvörðun PFS nr. 37/2015 - Beiðni 365 miðla ehf. um breytingu á 2. gr. tíðniheimildar A á 800 MHz tíðnisviðinu.