PFS hefur birt ákvörðun nr. 15/2008 í ágreiningsmáli Og fjarskipta ehf. (Vodafone) og Símans hf. um afslátt af verði fyrir bitastraumsaðgang til endursölu
PFS hefur birt ákvörðun nr. 15/2008 í ágreiningsmáli Og fjarskipta ehf. (Vodafone) og Símans hf. um afslátt af verði fyrir bitastraumsaðgang til endursölu
Póst- og fjarskiptastofnun tók þann 18. júlí s.l. ákvörðun þess efnis að Símanum er skylt uppfylla skyldu sína og fara að þeim kvöðum sem lagðar voru á fyrirtækið með ákvörðun PFS nr. 8/2008 ( um útnefningu fyrirtækis með umtalsverðan markaðsstyrk og álagningu kvaða á heildsölumarkaði fyrir breiðbandsaðgang (markaður 12)), frá 18. apríl 2008, og veita bitastraumsaðgang án hindrana og verðleggja allar ADSL tengingar til Vodafone í samræmi við kvöð um eftirlit með gjaldskrá skv. fyrrnefndri ákvörðun.
Í ákvörðunarorðum segir m.a.:
„ Síminn skal í viðskiptum sínum við Vodafone, frá og með 18. apríl s.l., veita fyrirtækinu að lágmarki 35% afslátt (35% smásala mínus) af öllum ADSL tengingum sem það kaupir í heildsölu, enda uppfylli Vodafone lágmarkskilyrðið um endursölu á að lágmarki 75 tengingum .“