PFS birtir drög að ákvörðun um breytingar á notkun efsta hluta GSM 900 tíðnisviðsins og um bann á innflutningi og sölu á þráðlausum CT1 símum
PFS birtir drög að ákvörðun um breytingar á notkun efsta hluta GSM 900 tíðnisviðsins og um bann á innflutningi og sölu á þráðlausum CT1 símum
PFS hefur sent hagsmunaaðilum til umsagnar drög að ákvörðun um breytingar á notkun efsta hluta GSM 900 tíðnisviðsins (914-915/959-960 MHz) og um bann á innflutningi og sölu CT1 þráðlausra síma. Hagsmunaaðilar, t.d. fjarskiptafyrirtæki, innflytjendur, söluaðilar fjarskiptabúnaðar og almenningur, eru hvattir til að gera athugasemdir við fyrirhugaða ákvörðun stofnunarinnar, sjái þeir einhverja annmarka á henni.
Frestur til að skila athugasemdum er til 8. nóvember n.k.
Efsti hluti GSM 900 tíðnisviðsins hefur fram að þessu verið notaður hér á landi fyrir þráðlausa síma sem byggja á CT1 tækni. Ný stafræn tækni, DECT, sem notar annað tíðnisvið, hefur smám saman verið að leysa CT1 tæknina af hólmi. Þráðlausir símar eru notaðir á takmörkuðu svæði, einkum á heimilum og vinnustöðum og er gerður greinarmunur á þeim og farsímum, t.d. GSM og NMT. Samkvæmt könnun sem PFS gerði fyrr á árinu hafa innflytjendur og söluaðilar síma hvorki flutt inn né selt CT1 þráðlausa síma síðustu 2-5 árin. Líklegt er þó að slíkir símar séu í notkun í einhverjum mæli í dag.
Helstu niðurstöður PFS
- PFS hyggst frá og með 1. janúar 2008 breyta skipulagi tíðnirófsins þannig að úthlutun fyrir CT1 tækni á 914-915/959-960 MHz tíðnibilinu er afturkölluð og umræddu tíðnisviði verður ráðstafað fyrir GSM þjónustu. Er þetta gert í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar sem íslenska ríkið hefur gengist undir.
- PFS hyggst frá og með 1. janúar 2008 banna innflutning og sölu CT1 þráðlausra síma.
- Að svo stöddu hyggst PFS ekki banna notkun CT1 þráðlausra síma. Notkun slíkra síma verður því ennþá heimil hér á landi eftir 1. janúar 2008, svo fremi sem þeir valda ekki skaðlegum truflunum á GSM þjónustu á umræddu tíðnisviði. Frá og með sama tíma nýtur CT1 þráðlaus símnotkun ekki verndar vegna truflana sem kunna að stafa af farsímaþjónustu á umræddu tíðnisviði. PFS getur látið innsigla síma eða bannað notkun þeirra og fengið þá afhenta til geymslu ef þeir trufla önnur fjarskipti eða hætta er á að öryggi fjarskipta sé raskað.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Ólafsson, gudmundur@pfs.is