Nýjar reglur um innanhússfjarskiptalagnir
Nýjar reglur um innanhússfjarskiptalagnir
Birtar hafa verið nýjar reglur um innanhússfjarskiptalagnir. Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur unnið að endurskoðun á þessum reglum með hliðsjón af þeirri tækniþróun sem átt hefur sér stað á fjarskiptamarkaðnum. Er hér átt við hina auknu ljósleiðaravæðingu landsins, en koparheimtaugar voru ráðandi á markaðinum þegar fyrri reglurnar voru settar árið 2006. Við endurskoðunina yfirfór stofnunin öll ákvæði reglnanna með framangreint í huga. Var hagsmunaaðilum á markaði gefinn kostur á því að koma með athugasemdir og tillögur að breytingum vegna endurskoðunarinnar á meðan á henni stóð. Þá var kallað eftir frekara samráði við hagsmunaaðila um þær breytingar sem stofnunin hugðist gera á framangreindum reglum. Hinar nýju reglur nr. 1111/2015 hafa nú verið birtar í Stjórnartíðindum en með útgáfu þeirra falla eldri reglur nr. 1009/2006 úr gildi.
Helstu breytingar sem gerðar voru á reglunum eru eftirfarandi:
- Mælt er fyrir um frávíkjanleika frá reglunum með samþykki húseiganda með undantekningum
- Breytingar hafa verið gerðar á orðskýringum. Þar má m.a. sjá nýtt hugtak - splæsitenging, auk þess sem hugtakið húskassi hefur minna vægi og meira lagt í hugtakið inntak, og er það gegnumgangandi í reglunum.
- Helstu breytingar varða 7. gr. reglnanna. Þar er nú kveðið á um heimild um að splæsitengja strengenda heimtaugar við innanhússlögn í inntaki, ef tveir þræðir innanhússlagnar liggja frá inntaki inn í hverja íbúð, að fengnu samþykki húseiganda
- Búið að fjarlægja skyldu um innsigli
- Þá hefur 12. gr. um upplýsingaskyldu húseiganda verið felld út
- Nýtt ákvæði um eftirlit og úttektir af hálfu PFS sbr. 13. gr.
- Nýtt ákvæði um upplýsingagjöf fjarskiptafyrirtækja til PFS sbr. 14. gr.
Hér fyrir neðan má nálgast annarsvegar drögin að hinum endurskoðuðu reglum sem birtar voru í samráði við hagsmunaaðila og hins vegar hinar nýju reglur nr. 1111/2015 um innanhússfjarskiptalagnir
Drög að breyttum reglum um innanhússfjarskiptalagnir (Word skjal með sýnilegum fyrirhuguðum breytingum)
Reglur nr. 1111/2015 um innanhússfjarskiptalagnir