Nýjar kröfur um alþjónustuskyldur Símans varðandi almenningssíma
Nýjar kröfur um alþjónustuskyldur Símans varðandi almenningssíma
Póst- og fjarskiptastofnun hefur birt kröfur um fjölda almenningssíma sem alþjónustuveitanda er skylt að starfrækja undir merkjum alþjónustu.
Samkvæmt þeim kröfum sem nú taka gildi er Símanum heimilt að loka þeim almenningssímum þar sem bókfærðar tekjur ná ekki kr. 50.000 á ári. Ávallt skal þó reka almenningssíma í flughöfnum, ferjuhöfnum, umferðarmiðstöðvum, sjúkrahúsum, fangelsum, háskólum og framhaldsskólum. Undantekning er gerð ef tekjur af almenningssímum á þessum stöðum eru óverulegar, t.d. undir kr. 30.000 á ári. Er Símanum þá einnig heimilt að loka þeim.
Miðað við þær kröfur sem nú eru settar fram af hálfu Póst- og fjarskiptastofnunar falla alls 147 almenningssímar undir kvöð um alþjónustu.
Sjá einnig lista yfir almenningssíma á Íslandi