Mílu ber að kostnaðargreina verð fyrir inntakskassa ljósleiðara
Mílu ber að kostnaðargreina verð fyrir inntakskassa ljósleiðara
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur með ákvörðun sinni nr. 15/2020 leyst úr ágreiningi milli Snerpu ehf. og Mílu ehf. um verð fyrir hýsingu á inntakskassa ljósleiðarastrengs í tækjarými Mílu ehf. að Holti í Önundarfirði. Snerpa ehf. óskaði eftir endurgjaldslausum aðgangi að aðstöðunni á grundvelli 69. gr. fjarskiptalaga á meðan Míla ehf. bauð fram aðstöðu í hálfum tækjaskáp samkvæmt gjaldskrá og aðgangskvöð sem hvílir á félaginu samkvæmt 28. gr. fjarskiptalaga.
Í málinu var það niðurstaða PFS að réttur fyrirtækja til aðgangs að landi og mannvirkjum samkvæmt 69. gr. fjarskiptalaga tæki til aðstöðu sem væri í eigu og umráðum annarra aðila en fjarskiptafyrirtækja. Í tilviki Mílu ehf., sem útnefnt fjarskiptafyrirtæki með umtalsverðan markaðsstyrk, færi um aðganginn samkvæmt 28. gr. laganna, fremur en almennu ákvæði um aðgang að aðstöðu fjarskiptafyrirtækja samkvæmt 25. gr. laganna.
Á hinn bóginn væri ljóst að sá aðgangur sem Snerpu væri boðinn, þ.e. aðstaða í hálfum tækjaskáp, væri ekki sá aðgangur sem félagið væri að biðja um. Nánar til tekið fólst sá aðgangur í því að setja upp inntakskassa fyrir ljósleiðara á vegg í umræddu tækjarými Mílu ehf. Því næst tók PFS það til skoðunar hvort slík aðgangsbeiðni Snerpu ehf. fæli í sér eðlilega og sanngjarna aðgangsbeiðni gagnvart Mílu ehf., en horft var til viðeigandi og lögbundinna matsskilyrða í því sambandi.
Að lokinni könnun á matsskilyrðum var það niðurstaða PFS að aðgangsbeiðni Snerpu ehf., þ.e. að setja upp inntakskassa fyrir ljósleiðara á vegg í tækjarými Mílu ehf., fæli í sér eðlilega og sanngjarna aðgangsbeiðni sem Mílu ehf. bæri að verða við. Umræddur aðgangur væri vel framkvæmanlegur og fæli ekki í sér forsendubreytingar fyrir Mílu ehf. hvað varðar fjárfestingu í aðstöðunni. Umræddur aðgangur Snerpu ehf. væri í þágu aukinnar samkeppni og til þess fallinn að auka framboð þjónustu til neytenda.
Að fenginni þessari niðurstöðu var lagt fyrir Mílu ehf., með vísan til 2. mgr. 29. gr. fjarskiptalaga, að kostnaðargreina verð fyrir hýsingu á inntakskassa fyrir ljósleiðara á vegg og uppfæra viðeigandi viðmiðunartilboð félagsins með samsvarandi hætti, enda komi fram aðgangsbeiðni frá Snerpu ehf., eða öðru fjarskiptafyrirtæki, í samræmi við forsendur ákvörðunarinnar.