Hoppa yfir valmynd

Míla braut ekki gegn fyrri ákvörðun PFS við Ljósnetsvæðingu á Ísafirði

Fréttasafn
20. september 2016

Míla braut ekki gegn fyrri ákvörðun PFS við Ljósnetsvæðingu á Ísafirði

Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) birtir nú ákvörðun sína nr. 12/2016 um VDSL þjónustu Mílu ehf. í götuskápum í Holtahverfi á Ísafirði. Snerpa ehf., sem er fjarskiptafyrirtæki með starfsemi á Ísafirði og nágrenni, hélt því fram að Míla hefði gerst brotleg við fyrirmæli þau sem PFS setti félaginu í ákvörðun sinni nr. 34/2014, þess efnis að Mílu væri óheimilt að hefja veitingu VDSL þjónustu (Ljósnet) í hverfinu, fyrr en Snerpa hefði fengið fullnægjandi sýndaraðgang (VULA) að heimtaugum sem tengdar væru um eldri götuskápa við þrjár tilteknar götur í umræddum hverfi. Að mati Snerpu braut Míla gegn umræddri ákvörðun með því að gangsetja tvo nýja götuskápa fyrir VDSL tengingar í Holtahverfi haustið 2014 og hafa þá áfram í rekstri eftir að PFS tók ákvörðun sína í desember það ár, þrátt fyrir að Snerpa hefði ekki fengið þann sýndaraðgang sem kveðið var á um í ákvörðuninni. Míla hafnaði þessum ásökunum Snerpu.

Það er niðurstaða PFS að Míla hafi ekki brotið gegn ákvörðun stofnunarinnar frá í desember 2014. Hin meintu brot áttu að hafa átt sér stað í október og byrjun nóvember 2014 og í janúar 2015. PFS telur að Míla hafi ekki getað brotið gegn ákvörðun sem tekin var í desember 2014 með athöfnum sem áttu sér stað fyrir þann tíma. Þá hefðu þær tengingar sem opnað var fyrir í janúar 2015 náð til sömu endanotenda og Snerpa hafði fengið aðgang að með umræddri ákvörðun PFS. Þar sem Snerpa hefur fengið raunaðgang að umræddum tengingum þarf félagið ekki sýndaraðgang að þeim. Því eiga þau rök ekki við sem Snerpa vitnar til í ákvörðun PFS nr. 34/2014, þ.e. að meina Mílu að veita Ljósnetsþjónustu á umræddum heimtaugum uns sýndaraðgangur væri tilbúinn. Ljósnetsþjónusta Mílu, sem flutt var úr símstöð hverfisins í hina tvo nýju götuskápa, náði aðeins til þeirra íbúa hverfisins sem ekki höfðu áður haft slíka þjónustu frá umræddri símstöð. Míla fór því ekki á þau svæði hverfisins sem framangreindri ákvörðun PFS var ætlað að tryggja jafna samkeppni aðila á.

PFS telur það hins vegar geta orkað tvímælis hvort Míla hafi farið til hins ýtrasta að þeim kvöðum sem á félaginu hvíldu á þessum tíma skv. ákvörðun PFS nr. 21/2014 (markaðir 4 og 5), sérstaklega kvöðinni um jafnræði. Þessar kvaðir voru hins vegar túlkaðar og nánar útlistaðar af hálfu PFS í ákvörðun PFS nr. 34/2014. Það verður m.a. að telja það gagnrýnivert að Míla hafi ekki tilkynnt Snerpu um framangreindan flutning VDSL tenginga frá umræddri símstöð í hina nýju götuskápa, þar sem mikilvægt er, vegna hættu á truflunum, að allar upplýsingar um kerfishögun liggi fyrir þegar fleiri en eitt fjarskiptafyrirtæki starfrækja xDSL kerfi á sama stað. Það varð svo einmitt raunin að umræddar tilfæringar Mílu ollu truflunum á tengingum Snerpu. Þá verður að gagnrýna að þrátt fyrir að Snerpa hafi á fyrri stigum óskað eftir slíkum truflanamælingum hafi Míla ekki kannað fyrr en vorið 2015 hvort hugsanlegt hefði verið að VDSL væðing Snerpu, sem átti sér stað í september 2014, hafi orsakað þær truflanir sem síðar leiddu til þess að Míla fann sig knúna til að flytja umræddar VDSL tengingar og það þrátt fyrir að Snerpa hefði á fyrri stigum óskað eftir slíkum truflanamælingum.

Það er því niðurstaða PFS að ýmislegt hafi skort varðandi leiðbeiningar og upplýsingagjöf Mílu til Snerpu í tengslum við umræddan flutning VDSL tenginga. Áréttar PFS að Mílu beri að taka hæfilegt tillit til hagsmuna Snerpu, sem og annarra samkeppnisaðila, við uppbyggingu fjarskiptaneta sinna.

Síðastliðið vor afhenti Míla PFS drög að uppfærðu viðmiðunartilboði fyrir bitastraumsaðgang, þar sem m.a. er að finna skilmála fyrir sýndaraðgang (VULA) en um nýmæli er að ræða. Þá hafði Míla farið rúmlega ár fram úr þeim fresti sem PFS veitti félaginu til að afhenda tilboðið með fyrrnefndri ákvörðun sinni nr. 21/2014. PFS efndi svo til innanlandssamráðs um viðmiðunartilboðsdrögin í júní sl. Stofnunin er nú að vinna úr samráðinu og styttist í að drög að ákvörðun hennar í málinu fari til samráðs hjá Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) áður en tekin verður endanleg ákvörðun um hvernig umræddum sýndaraðgangi verður háttað. Sú ákvörðun ætti að liggja fyrir í lok þessa árs. Því ætti nú að styttast í að þeir íbúar í Holtahverfi á Ísafirði, sem búið hafa við lélegar internettengingar, fá bót sinna mála.

Ákvörðun PFS nr. 12/2016 - VDSL þjónusta Mílu í nýjum götuskápum í Holtahverfi á Ísafirði