Íslenskur fjarskiptamarkaður í tölum - Tölfræðiskýrsla PFS fyrir fyrri hluta ársins 2020 komin út
Íslenskur fjarskiptamarkaður í tölum - Tölfræðiskýrsla PFS fyrir fyrri hluta ársins 2020 komin út
Tvisvar á ári safnar Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) upplýsingum frá skráðum fjarskiptafyrirtækjum hér á landi um ýmsar stærðir í rekstri og þjónustu á sviði fjarskipta. Upp úr þeim tölum vinnur stofnunin tölfræðiskýrslur sem sýna upplýsingar um helstu stærðir og fyrirtæki á íslenskum fjarskiptamarkaði. Markmiðið er að bæta upplýsingagjöf og auka gagnsæi á þessum markaði og eru skýrslur PFS í samræmi við þær skýrslur sem systurstofnanir PFS í nágrannalöndum okkar gefa út.
Skýrslan sem nú er birt sýnir tölfræði um fjarskiptamarkaðinn á fyrri helmingi ársins 2020. Hún inniheldur tölulegar upplýsingar um helstu þætti á markaðnum og samanburð við stöðuna á árunum á undan. Skýrslunni er skipt upp eftir fastanetinu, farsímanetinu, föstum internettengingum og veltu og fjárfestingu á fjarskiptamarkaði.
Meðal helstu tölulegu upplýsinga um fyrri hluta íslenska fjarskiptamarkaðinn árið 2020 má nefna:
Fjöldi áskrifenda með heimasíma fækkar milli ára og mínútum fækkar um 9%. Netsímaáskrifendum (VoIP) hefur fjölgað með aukinni lagningu ljósleiðara og niðurlagningu á eldra heimasímakerfi (PSTN kerfi) Símans. Síminn og Vodafone eru stærstu fyrirtækin á markaði fyrir heimasíma með um 92% hlutdeild.
Fjöldi mínútna úr farsímum var 577 millj. mínútna á tímabilinu en var á fyrri hluta ársins 2019 462 millj. mínútna og var aukningin því um 21% milli ára sem er töluvert umfram aukningu fyrri ára.
Gagnamagn á farsímaneti heldur áfram að aukast en það hefur hefur verið mjög mikil aukning undanfarin ár með innleiðingu á 4G. Í farsímanetum er hlutfallslega meira gagnamagn notað í símum en í öðrum tækjum sem eru eingöngu fyrir gagnanotkun, t.d. spjaldtölvum.
Fjöldi Internettenginga er svipaður milli ára, en aukning er í ljósleiðaratengingum samhliða fækkun í xDSL tengingum. Um mitt ár 2020 voru ljósleiðaratengingar 66% allra internettenginga.
Gagnamagn á fastaneti á fyrri hluta ársins 2020 er 286.233 TB en var á fyrri hluta ársins á undan 215.505 TB og jókst því gagnamagn um tæp 33%.
Áskrifendur með sjónvarp yfir IPTV eru 89.248 á miðju ári 2020, en voru 96.160 á miðju ári 2019 og hefur því fækkað um 7%.
Velta á fjarskiptamarkaði á fyrri hluta ársins 2020 var svipuð og árið á undan en tekjur af heimasíma og farsíma fóru lækkandi en aftur á móti hafa tekjur af gagnaflutningum og internetþjónustu ásamt tekjum af fastaneti farið hækkandi.
Fjárfesting á fjarskiptamarkaði er aðallega í fastaneti, m.a. vegna lagningar ljósleiðara og í farsímarekstri.
Helstu stærðir á fjarskiptamarkaði má sjá í töflunni hér fyrir neðan sem einnig er að finna í skýrslunni sjálfri. Ásamt skýrslunni er birt Excel skjal með bakgrunnsupplýsingum skýrslunnar í töflum og myndum.
Excel skjal með bakgrunnsupplýsingum skýrslunnar í töflum og myndum