Framlengdur skilafrestur umsagna vegna fækkunar dreifingardaga pósts í þéttbýli
Fréttasafn
22. nóvember 2017
Framlengdur skilafrestur umsagna vegna fækkunar dreifingardaga pósts í þéttbýli
Þann 7. nóvember sl. kallaði Póst- og fjarskiptastofnun eftir sjónarmiðum hagsmunaaðila vegna ákvörðunar Íslandspósts um að fækka dreifingardögum pósts í þéttbýli frá og með 1. febrúar 2018. Skilafrestur umsagna og athugasemda hefur nú verið framlengdur til og með 4. desember nk.
Sjá nánar í fréttatilkynningu hér á vefnum frá 7. nóvember sl.