Hoppa yfir valmynd

Framlag til Neyðarlínunnar úr jöfnunarsjóði alþjónustu fyrir árið 2018

Fréttasafn
26. mars 2018

Framlag til Neyðarlínunnar úr jöfnunarsjóði alþjónustu fyrir árið 2018

Póst- og fjarskiptastofnun hefur með ákvörðun sinni nr. 4/2018 samþykkt framlag til Neyðarlínunnar ohf. úr jöfnunarsjóði alþjónustu fyrir árið 2018 vegna neyðarsímsvörunar. Þetta árið kemur þó til skerðingar á úthlutuðu framlagi til Neyðarlínunnar vegna stöðu sjóðsins og fyrirhugaðra reglugerðabreytinga sem varða tilhögun fjármögnunar neyðarsímsvörunar. 

Um nokkurt árabil hefur ríkt ójafnvægi á milli þeirra tekna sem renna í jöfnunarsjóð alþjónustu í fjarskiptum og þeirra útgjalda sem leiða af ákvörðunum PFS um alþjónustuframlög til Neyðarlínunnar. Til að halda framlögum til Neyðarlínunnar óbreyttum, að teknu tilliti til verðlagsbreytinga, hefur PFS gengið á inneign sem hefur verið til staðar í sjóðnum. Sú inneign sem nú er í jöfnunarsjóði dugir hins vegar ekki lengur til að ákvarða Neyðarlínunni fullt framlag samkvæmt umsókn félagsins.

Þá liggur fyrir að ekki er fyrir hendi skuldbinding af hálfu stjórnvalda um að auka tekjur sjóðsins, heldur er það fremur fyrirætlun samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins að endurskoða reglugerð um alþjónustu nr. 1356/2007 með það fyrir augum að hverfa frá því að fjármagna neyðarsímsvörun með framlögum úr jöfnunarsjóði alþjónustu.

Umsókn Neyðarlínunnar hljóðaði upp á framlag að upphæð kr. 69.362.508 og var samþykkt að leggja hana til grundvallar sem útreiknaða alþjónustubyrði félagsins.

Hins vegar þarf úthlutað framlag að taka mið af inneign í sjóðinum og væntum tekjum, auk þess sem útgreiðsla framlags þarf að eiga sér heimild í fjárlögum. Inneign jöfnunarsjóðs alþjónustu sem afgangur frá fyrra ári er nú 8.278.052 kr. Samkvæmt 3. mgr. 22. gr. fjarskiptalaga skal sá afgangur fluttur yfir á árið 2018. Þá eru tekjur sjóðsins á árinu 2018 áætlaðar kr. 45.700.000, en samtals er því um að ræða úthlutað framlag að upphæð kr. 53.978.052 kr.

Útgjaldaheimild fyrir jöfnunarsjóð alþjónustu sem fjárlög ársins 2018 er í samræmi við áætlaðar tekjur sjóðsins, 45.700.000.

Samkvæmt framangreindu getur útgreiðsla alþjónustuframlags til Neyðarlínunnar, miðað við þær útgjaldaheimildir sem nú eru fyrir hendi í fjárlögum, ekki orðið hærri en kr. 45.700.000. Eftirstöðvar úthlutaðs framlags til Neyðarlínunnar, að upphæð 8.278.052 kr., þurfa að greiðast með fyrirvara um að heimild til þess fáist í fjáraukalögum.

Ákvörðun PFS nr. 4/2018 - Alþjónustuframlag til Neyðarlínunnar ohf. fyrir árið 2018