Hoppa yfir valmynd

Fimm ákvarðanir PFS um heimild Íslandspósts til fækkunar póstafgreiðslustaða

Fréttasafn
21. ágúst 2008

Fimm ákvarðanir PFS um heimild Íslandspósts til fækkunar póstafgreiðslustaða

Póst- og fjarskiptastofnun hefur birt fimm ákvarðanir þar sem samþykktar eru umsóknir Íslandspósts um að loka póstafgreiðslustöðum á Flúðum, í Varmahlíð, að Reykholti, á Króksfjarðarnesi og á Laugum.
Um ástæður lokunar póstafgreiðslna á ofangreindum stöðum kom fram að Íslandspóstur telur að vegna smæðar samfélagsins sé ekki þörf á að reka sérstaka póstafgreiðslu heldur sé hægt á auðveldan hátt að leysa af hendi þjónustu póstafgreiðslunnar með landpósti. Landpóstar séu eins konar „pósthús á hjólum“, sem komi með og sæki sendingar eftir þörfum.
Er það niðurstaða Póst- og fjarskiptastofnunar að sú þjónusta sem Íslandspóstur hyggst bjóða íbúum í viðkomandi sveitarfélögum uppfylli eftir sem áður gæðakröfur laga um póstþjónustu nr. 19/2002.

Hér fyrir neðan má lesa ákvarðanirnar í heild (PDF form):

Ákvörðun PFS nr. 16/2008 um lokun póstafgreiðslu á Flúðum  - 10. júlí 2008

Ákvörðun PFS nr. 17/2008 um lokun póstafgreiðslu í Varmahlíð  - 18. júlí 2008

Ákvörðun PFS nr. 18/2008 um lokun póstafgreiðslu að Reykholti  - 18. júlí 2008

Ákvörðun PFS nr. 20/2008 um lokun póstafgreiðslu á Laugum  - 12. ágúst 2008

Ákvörðun PFS nr. 21/2008 um lokun póstafgreiðslu á Króksfjarðarnesi   - 12. ágúst 2008