Ákvörðun PFS um breytingar á notkun efsta hluta GSM 900 tíðnisviðsins og um bann á innflutningi og sölu á þráðlausum CT1 símum
Ákvörðun PFS um breytingar á notkun efsta hluta GSM 900 tíðnisviðsins og um bann á innflutningi og sölu á þráðlausum CT1 símum
Efsti hluti GSM 900 tíðnisviðsins hefur fram að þessu verið notaður hér á landi fyrir þráðlausa síma sem byggja á CT1 tækni. Ný starfræn tækni, DECT, sem notar annað tíðnisvið, hefur smám saman verið að leysa CT1 tæknina af hólmi. Þráðlausir símar eru notaðir á takmörkuðu svæði, einkum á heimilum og vinnustöðum og er gerður greinarmunur á þeim og farsímum, t.d. GSM og NMT. Samkvæmt könnun sem PFS gerði fyrr á árinu hafa innflytjendur og söluaðilar síma hvorki flutt inn né selt CT1 þráðlausa síma síðustu 2-5 árin. Líklegt er þó að slíkir símar séu í notkun í einhverjum mæli í dag.
Helstu niðurstöður PFS
- PFS breytir skipulagi tíðnirófsins á þá leið að úthlutun fyrir CT1 tækni á 914-915/959-960 MHz tíðnisviðinu er afturkölluð frá og með 1. janúar 2008. Eftir þann tíma verður umrætt tíðnisvið laust til ráðstöfunar fyrir farsímaþjónustu.
- PFS bannar innflutning og sölu CT1 síma frá og með 1. janúar 2008.
- Að svo stöddu hyggst PFS ekki banna notkun CT1 þráðlausra síma. Notkun slíkra síma verður því ennþá heimil hér á landi eftir 1. janúar 2008, svo fremi sem þeir valda ekki skaðlegum truflunum á GSM þjónustu á umræddu tíðnisviði. Frá og með sama tíma nýtur CT1 þráðlaus símnotkun ekki verndar vegna truflana sem kunna að stafa af farsímaþjónustu á umræddu tíðnisviði. PFS getur látið innsigla síma eða bannað notkun þeirra og fengið þá afhenta til geymslu ef þeir trufla önnur fjarskipti eða hætta er á að öryggi fjarskipta sé raskað.
PFS sendi hagsmunaaðilum til umsagnar drög að ofangreindri ákvörðun með bréfi, dags. 11. október s.l. og birti hana á heimasíðu stofnunarinnar. Hagsmunaaðilar, t.d. fjarskiptafyrirtæki, innflytjendur og söluaðilar fjarskiptabúnaðar og almenningur, voru hvattir til að gera athugasemdir við fyrirhugaða ákvörðun stofnunarinnar, ef þeir sæju einhverja annmarka á henni. Engar efnislegar athugasemdir bárust.