Ríkisútvarpið og 365 ljósvakamiðlar ehf. bjóða í UHF-rásir fyrir stafrænt sjónvarp
Ríkisútvarpið og 365 ljósvakamiðlar ehf. bjóða í UHF-rásir fyrir stafrænt sjónvarp
Tilboð í UHF-rásir fyrir stafrænt sjónvarp á landsvísu skv. DVB-T staðli voru opnuð hjá Póst- og fjarskiptastofnun kl. 13.00 í dag.
Tvö fyrirtæki buðu í rásirnar; Ríkisútvarpið og 365 ljósvakamiðlar ehf.
Ríkisútvarpið bauð í þrjár rásir til að dreifa 7 sjónvarpsdagskrám til 98% landsmanna fyrir 1. október 2007. Að auki hyggst Ríkisútvarpið dreifa háskerpusjónvarpi á einni rás.
365 ljósvakamiðlar ehf. bauð í tvær sjónvarpsrásir til að dreifa 7-15 sjónvarpsdagskrám. Fyrirtækið hyggst ljúka uppbyggingu á dreifikerfi fyrir 98% landsmanna 1. maí 2007.
Ekki var sótt um rás til að dreifa háskerpusjónvarpi.
Með því að bjóða út UHF-rásir er stefnt að því að sem flestir landsmenn eigi innan tveggja ára kost á að taka á móti stafrænum sjónvarpssendingum með DVB-T tækni.
Í úboði voru gerðar þær kröfur að dreifinet bjóðenda næðu að lágmarki til 40 sveitarfélaga innan árs frá úthlutun réttinda og til 98% heimila í landinu innan tveggja ára.
Ekki verður krafist gjalds fyrir réttindi til að nota UHF-rásirnar, heldur munu aðrir þættir ráða vali á milli bjóðenda s.s. útbreiðsla sendinga og þjónusta við notendur.
Tilkynnt verður um niðurstöðu útboðsins eigi síðar en 27. júní.
Fundargerð frá opnun tilboða í UHF-rásirnar.
Frekari upplýsingar veitir Hrafnkell V. Gíslason forstjóri PFS s. 510 1500