Ísland í 4. sæti í breiðbandsvæðingu
Ísland í 4. sæti í breiðbandsvæðingu
Í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) kemur fram að Ísland er í 4. sæti í útbreiðslu breiðbands. Breiðbandsþjónusta er mest útbreidd í Suður-Kóreu þar sem 24,9 af hverjum 100 íbúum eru áskrifendur að slíkri þjónustu. Þetta hlutfall er 19% í Hollandi, 18,8% í Danmörku og 18,3% á Íslandi. Í næstu sætum koma Kanada, Sviss, Belgía, Japan, Finnland, Noregur og Svíþjóð.
DSL er nú útbreiddasta breiðbandsþjónustan í 27 OECD-ríkjum af 30. Hlutfall þeirrar þjónustu er hæst á Íslandi eða 17,4%.
Áskrifendur að breiðbandsþjónustu voru 118 milljónir í aðildarríkjum OECD í lok síðasta árs og að jafnaði voru 10,2 af hverjum 100 íbúum ríkjanna með slíka áskrift. Þetta hlutfall var 7,3% í árslok 2003. Ný þjónusta, svo sem myndbandaþjónusta í sjónvarpi, hefur valdið því að áskriftir að breiðbandi hafa aukist til muna.
Skýrsla OECD byggir m.a. á tölfræðiupplýsingum frá Póst- og fjarskiptastofnun.
Sjá yfirlit OECD um útbreiðslu breiðbands