Samgönguráðherra og forstjóri PFS undirrita samning um árangursstjórnun
Fréttasafn
18. maí 2005
Samgönguráðherra og forstjóri PFS undirrita samning um árangursstjórnun

Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Hrafnkell V. Gíslason forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar undirrituðu á alþjóðlegum fjarskiptadegi 17. maí 2005 fjögurra ára samning um árangursstjórnun. Samkvæmt honum skal PFS m.a. leggja fram ársáætlun fyrir 15. desember ár hvert, þar sem gerð er grein fyrir helstu fjárhagsstærðum, starfsmarkmiðum ársins og þeim árangursmarkmiðum sem stefnt er að. Einnig skal Póst- og fjarskiptastofnun leggja fram langtímaáætlun til 4 ára, fyrir 1. júlí 2005, þar sem kemur fram hvernig stofnunin hyggst vinna að þeim markmiðum sem tilgreind eru í samningnum, en þau voru jafnframt sett fram í nýrri fjarskiptaáætlun fyrir 2005-2010.
Sjá samninginn í heild sinni. (PDF-84 KB)