Samráðsfrestur framlengdur vegna markaðsgreininga á mörkuðum 4 og 5
Fréttasafn
04. apríl 2013
Samráðsfrestur framlengdur vegna markaðsgreininga á mörkuðum 4 og 5
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur ákveðið að framlengja skilafrest á athugasemdum vegna samráðs við hagsmunaaðila um markaðsgreiningar á heildsölumörkuðum fyrir aðgang að föstum aðgangsnetum og breiðbandsaðgang. Samráðið var auglýst á vef stofnunarinnar þann 7. mars sl. og var frestur til að skila athugasemdum gefinn til 18. apríl nk.
Skilafresturinn hefur nú verið framlengdur til og með 2. maí nk. Ekki verður veittur frekari frestur.
Sjá nánar um samráðið í tilkynningu hér á vefnum frá 7. mars sl.