Umfjöllun um öryggi á internetinu – www.netöryggi.is
Umfjöllun um öryggi á internetinu – www.netöryggi.is
Í vikunni hefur verið mikil og þörf umfjöllun um netöryggi á Íslandi í þættinum Kastljós á RÚV. Þar kom ítrekað fram sú staðreynd að því miður hefur umræða og vitund um öryggismál á internetinu verið allt of lítil í samfélaginu, miðað við hversu mikilvægur þáttur netnotkun er í daglegu lífi almennings, viðskiptum og stjórnsýslu.
Með mikilli aukningu snjallsímaeignar Íslendinga auk fjölgunar fartölva og spjaldtölva hafa bæði samskipti og umferð gagna á Netinu aukist gríðarlega. Það er því mjög brýnt að vitund og þekking á grundvallaratriðum netöryggis aukist samhliða notkuninni.
Póst- og fjarskiptastofnun hefur um árabil haldið úti vefnum www.netöryggi.is þar sem almenningur getur leitað upplýsinga og leiðbeininga um hvernig hægt er að efla öryggi í netnotkun. Á vefnum eru einnig upplýsingar fyrir lítil fyrirtæki sem ekki hafa bolmagn til að vera með tölvu- og netsérfræðinga innanborðs. Stofnunin hvetur þá sem telja sig þurfa fræðslu og upplýsingar til að leita þeirra á vefnum www.netöryggi.is.
Notkun á þráðlausum netum og mikilvægi sterkra lykilorða
Upplýsingar á vefnum www.netöryggi.is eru miðaðar við þarfir almennings og þeirra sem ekki eru sérfræðingar um tækni. Þar má t.d. nefna leiðbeiningar um netnotkun á þráðlausum netum, bæði svokölluð heimanet og einnig „heita reiti“ eða opin þráðlaus net t.d. á kaffihúsum, en þar eru ýmsar hættur sem fólk þarf að þekkja. Einnig eru á vefnum góðar leiðbeiningar um hvernig hægt er að efla öryggi sitt með notkun sterkra lykilorða. Sérstök upplýsingasíða um netöryggi snjallsíma, spjaldtölva og fartölva hefur einnig verið sett á vefinn.
Auk vefsins www.netöryggi.is er PFS einnig aðili að vefnum Netsvar.is í samstarfið við SAFT verkefnið hjá Heimili og skóla sem vinnur að netöryggi barna og ungmenna, og fleiri aðila.
Öryggi samfélagsins – netöryggis og viðbragðshópurinn CERT-ÍS
Innan PFS hefur nýlega verið myndaður netöryggis- og viðbragðshópurinn CERT-ÍS. Stofnuninni var falið að mynda þann hóp skv. tilmælum þáverandi samgönguráðherra í lok árs 2010. (Þess má geta að CERT er skammstöfun á enska heitinu Computer Emergency Response Team)
Í starfsemi hópsins verður lögð höfuðáhersla á vernd ómissandi upplýsingainnviða Íslands, meðal annars með því að lágmarka það tjón sem hljótast kann af netárásum og öðrum ógnum sem beinast að mikilvægum innviðum upplýsingasamfélagsins. Ennfremur verður hlutverk hópsins að stjórna, samhæfa og samræma aðgerðir þegar neyðarástand skapast, auk þess að vera landstengiliður við sambærilega erlenda CERT hópa.
Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp um breytingu á fjarskiptalögum þar sem settar eru nauðsynlegar lagastoðir fyrir starfsemi CERT-ÍS. Póst- og fjarskiptastofnun telur mjög brýnt að frumvarpið nái fram að ganga sem fyrst svo formleg starfsemi hópsins geti hafist.
Reglur PFS um öryggi og vernd í fjarskiptum
Póst- og fjarskiptastofnun hefur sett reglur fyrir fjarskiptafyrirtæki um öryggi í fjarskiptum, vernd neta og upplýsinga sem um þau fara og gæði IP-fjarskiptaþjónustu. Reglurnar tóku gildi um mitt ár 2008. Stofnunin fylgist reglulega með því að farið sé eftir þessum reglum.
Hægt er að kynna sér reglurnar á vef Stjórnartíðinda:
- Reglur um vernd upplýsinga í almennum fjarskiptanetum nr. 1221/2007
- Reglur um virkni almennra fjarskiptaneta nr. 1222/2007
- Reglur um vernd, virkni og gæði IP fjarskiptaþjónustu nr. 1223/2007
Fæðsla og vitundarvakning um netöryggi skiptir sköpum
Íslenskt samfélag, eins og heimsbyggðin öll, verður sífellt háðari því að fjarskiptakerfi og internetumferð séu ótrufluð og varin eins og kostur er gagnvart hugsanlegum árásum og glæpastarfsemi. Margar rannsóknir hafa þó sýnt að veikasti hlekkurinn þegar kemur að öryggismálum er oft á tíðum manneskjan sjálf. Því er ljóst að fræðsla og vitundarvakning um netöryggi fyrir almenning og starfsfólk fyrirtækja, stofnana og innan stjórnsýslunnar er einn mikilvægasti þátturinn í að tryggja öryggi samfélagsins alls.