Hoppa yfir valmynd

PFS kallar eftir samráði um tíðnisvið fyrir þráðlausa hljóðnema

Fréttasafn
29. febrúar 2012

PFS kallar eftir samráði um tíðnisvið fyrir þráðlausa hljóðnema

Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur ákveðið að efna til samráðs við hagsmunaaðila um tíðnisvið fyrir þráðlausa hljóðnema.
Samkvæmt lögum um fjarskipti nr. 81/2003, hefur PFS það hlutverk að annast skipulag tíðnirófsins þannig að hagnýting þess í þágu fjarskipta sé skilvirk, hagkvæm og truflanalaus.

Í lok síðasta árs birti stofnunin niðurstöður sínar að loknu samráði um tíðniskipulag.  Ákveðið hefur verið að stærsti hluti tíðnisviðsins 790 – 862 MHz verði notað í framtíðinni fyrir farnetsþjónustu.  Tíðnisviðið hefur verið notað fyrir hliðræna sjónvarpssenda og jafnframt hafa verið veitt leyfi fyrir notkun þráðlausra hljóðnema á þessu tíðnisviði, en ávallt á víkjandi forsendum. Síðustu árin hefur verið gerð krafa um að hljóðnemarnir séu stillanlegir hvað varðar tíðni.

PFS hefur ekki heimilað notkun nýrra þráðlausra hljóðnema á þessu tíðnisviði í nokkur ár og hefur nú ákveðið að þeir sem hafa haft heimildir til notkunar á þráðlausum hljóðnemum á þessu tíðnisviði þurfi að flytja sig á önnur tíðnisvið fyrir 31. desember 2012.  Einnig hefur komið hefur í ljós að þó nokkuð af hljóðnemum hefur verið tekið í notkun á þessu tíðnisviði án þess að sótt hafi verið um heimild fyrir þeirri notkun.  Þegar farnetsþjónusta er orðin virk á tíðnisviðinu verða hljóðnemar ónothæfir.

Þessi breyting er í samræmi við þróunina í nágrannalöndum okkar, en notkun umrædds tíðnisviðs er að breytast um alla Evrópu úr því að notast fyrir sjónvarpsþjónustu yfir í farnetsþjónustur. Evrópusambandið vinnur að því að á árinu 2013 verði það orðin skylda hjá aðildarlöndum að nota þetta tíðnisvið fyrir farnetsþjónustur.

PFS óskar eftir umsögnum hagsmunaaðila um tillögur sínar varðandi ofangreindar breytingar, sem fram koma í samráðsskjali hér fyrir neðan.

Frestur til að skila inn upplýsingum, umsögnum og athugasemdum er til og með 15. mars 2012.

Umsagnir berist til til Póst- og fjarskiptastofnunar, Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík eða á netfangið thorleifur(hjá)pfs.is. 

Nánari upplýsingar veitir Þorleifur Jónasson forstöðumaður tæknideildar PFS.

Sjá nánar:
Samráðsskjal um tíðnisvið fyrir þráðlausa hljóðnema (PDF)