Hoppa yfir valmynd

Síminn tilkynnti notanda ekki um að upplýsingar um símnotkun hans hafi verið skoðaðar án heimildar

Fréttasafn
27. febrúar 2012

Síminn tilkynnti notanda ekki um að upplýsingar um símnotkun hans hafi verið skoðaðar án heimildar

Með ákvörðun sinni nr. 5/2012 frá 15. febrúar s.l. komst Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi brotið gegn sbr. 1. mgr. 47. gr. fjarskiptalaga með því að taka ekki til rannsóknar ábendingu frá notanda um hugsanlega ólögmæta hlerun fjarskipta fyrr en um ári eftir að hún barst félaginu. Hafi það falið í sér ámælisvert athafnaleysi. Einnig hafi Síminn brotið gegn sama ákvæði og 15. gr. reglna nr. 1221/2007, um vernd upplýsinga á almennum fjarskiptanetum, með því að tilkynna ekki umræddum notanda að fjarskiptaleynd hafði verið rofin gagnvart honum eftir að rannsókn innan fyrirtækisins leiddi í ljós að starfsmaður þess hafði með ólögmætum hætti kynnt sér upplýsingar um símnotkun notandans.

Aðdragandi málsins er sá að í september 2008 kvartaði kona til Símans vegna grunsemda um að fyrrverandi eiginmaður hennar, sem væri starfsmaður fyrirtækisins, væri að hlera símasamskipti hennar. Engin viðbrögð bárust frá Símanum við þessari kvörtun. Kvörtunin var síðan ítrekuð í september 2009. Í október sama ár berst svar frá Símanum þar sem segir m.a. að til þess  að rannsókn á því hvort að starfsmaður fyrirtækisins hafi brotið fjarskiptalög með ólögmætri hlerun þurfi að koma beiðni um það frá lögreglu ásamt tilvísun í tilheyrandi lagastoð. Í júní 2010 leggur konan fram kvörtun við PFS og óskar eftir því að stofnunin hlutist til um það að Síminn taki ábendingu hennar til rannsóknar og veiti henni svör um hvort að sími hennar hafi verið hleraður.

Við skoðun PFS á málinu kom fljótlega í ljós að torvelt væri að rannsaka ábendingu kvartanda til hlítar þar sem að svo langt var liðið síðan meint hlerun átti að hafa farið fram. Þannig væru ekki lengur fyrir hendi aðgangsskráningar í viðeigandi tækjabúnaði Símans, en slíkum upplýsingum er jafnan eytt eftir 12 mánaða varðveislutíma. Því til viðbótar fullyrti Síminn að viðkomandi starfsmaður hefði ekki haft þann nauðsynlega aðgang að kerfum fyrirtækisins til þess að geta framkvæmt hlerun.

Í framhaldi af þessu einskorðaði PFS meðferð málsins við það hvort Síminn hefði brugðist rétt við ábendingu konunnar á sínum tíma, þ.e. að taka ábendinguna ekki strax til rannsóknar og tilkynna henni niðurstöðu rannsóknarinnar. Í tilefni af þessu hófust bréfaskipti við Símann þar sem m.a. var óskað eftir upplýsingum um hvort og þá hvenær rannsókn hefði verið framkvæmd af Símanum og hverjir hefðu komið þar að verki. Kom þá í ljós að rannsókn hafði farið fram innan fyrirtækisins eftir að kvartandi hafði ítrekað kvörtun sína í september 2009, en niðurstaða hennar hafi bent til þess að viðkomandi starfsmaður væri saklaus af ásökunum konunnar um hlerun. Taldi PFS að svör Símans væru misvísandi þar sem konunni hafði verið tilkynnt að rannsókn myndi ekki fara fram fyrr en beiðni um það kæmi frá lögreglunni.

Vegna misvísandi og mótsagnakenndra svara frá Símanum hélt PFS rannsókn sinni áfram. Það var síðan á fundi með PFS í nóvember 2011 sem starfsmaður Símans upplýsir óvænt að við rannsókn á ábendingu konunnar hafi komið í ljós að umræddur starfsmaður, sem kvörtunin beindist að, hafði í reynd skoðað upplýsingar um símnotkun hennar án heimildar og hafi hann fengið áminningu fyrir athæfið. Nánar tiltekið voru þær upplýsingar sem starfsmaðurinn skoðaði um kvartanda svokallaðar fjarskiptaumferðarupplýsingar, þ.e. aðallega upplýsingar um hvaða símanúmer símtæki konunnar tengdust, bæði þau sem hringt var í og tekið á móti, tímasetningar og lengd símtala. Þetta teljast til persónuupplýsinga sem sérstaklega verndaðar eru í 42. gr. fjarskiptalaga og teljast njóta fjarskiptaleyndar samkvæmt 47. gr. laganna.   

Á grundvelli þessara upplýsinga telur PFS ljóst að Síminn hafi brotið gegn 1. mgr. 47. gr. fjarskiptalaga, sbr. og 15. gr. reglna nr. 1221/2007 með því að tilkynna konunni ekki um að fjarskiptaleynd hefði verið rofin gagnvart henni, eftir að rannsókn innan fyrirtækisins staðfesti að starfsmaður þess hafði skoðað upplýsingar um símnotkun hennar án heimildar.  

PFS átelur Símann harðlega fyrir að veita stofnuninni ófullnægjandi, misvísandi og rangar upplýsingar og fyrir að gæta fyrst og fremst að einkahagsmunum viðkomandi starfsmanns fyrirtækisins, í stað þess að upplýsa  umræddan kvartanda um að fjarskiptaleynd hefði verði rofin gagnvart honum.

Verður mál þetta tilkynnt lögreglu.

Sjá ákvörðunina í heild:

Ákvörðun PFS nr. 5/2012 vegna meðferðar öryggisatviks hjá Símanum (PDF)