Hoppa yfir valmynd

PFS endurúthlutar tíðniheimildum fyrir farsímaþjónustu til næstu 10 ára

Fréttasafn
16. febrúar 2012

PFS endurúthlutar tíðniheimildum fyrir farsímaþjónustu til næstu 10 ára

Þann 14. febrúar sl. endurútgaf PFS tíðniheimildir fyrir farsímaþjónustu á 900 MHz og 1800 MHz tíðnisviðunum til næstu tíu ára, með ákveðnum undantekningum.  Um er að ræða heimildir til Símans hf. og Fjarskipta ehf., á báðum tíðnisviðum og Nova ehf. og IMC Íslands ehf. á 1800 MHz tíðnisviðinu.

Í nýjum tíðniheimildum fyrir 1800 MHz er opnað á þann möguleika að tíðnisviðið nýtist jafnframt fyrir fjórðu kynslóðar farsímaþjónustu (LTE). Slíkt mun þó ekki verða mögulegt fyrr en að afloknu uppboði á lausum tíðnum á tíðnisviðinu.  Stefnir stofnunin að því að halda slíkt uppboð á 1800 MHz og 800 MHz tíðnisviðunum síðar á árinu.
Tíðniheimildirnar á 1800 MHz tíðnisviðinu nú eru því gefnar út með fyrirvara um frekari skilyrði um útbreiðslu með tilliti til fjórðu kynslóðar farsímaþjónustu.  Skal hún vera í samræmi við lágmarkskröfur sem mótaðar verða í skilmálum áætlaðs uppboðs.

Í tíðniheimildum fyrir 900 MHz tíðnisviðið er nýtingin bundin við GSM og UMTS þjónustu, þ.e. þriðju kynslóðar farsímaþjónustu.

Með endurútgáfu tíðniheimildanna nú er innheimt gjald á grundvelli bráðabirgðaákvæðis III í lögum, nr. 81/2003, um fjarskipti, sbr. lög, nr. 146/2010, um breytingu á lögum um fjarskipti nr. 81/2003, sem Alþingi samþykkti í desember 2010.  Alls er um að ræða 115.700.000,- kr. sem renna munu í fjarskiptasjóð.  

Nánari skýringar á forsendum PFS um framtíðarskipulag framangreindra tíðnisviða er að finna í niðurstöðuskjali samráðs sem fram fór á síðasta ári.  

Útgefnar tíðniheimildir má skoða í töflu yfir skráð fjarskiptafyrirtæki með tíðniheimild hér á vefnum.