Tvær ákvarðanir PFS varðandi endurskoðaðar kostnaðargreiningar
Tvær ákvarðanir PFS varðandi endurskoðaðar kostnaðargreiningar
Póst- og fjarskiptastofnun hefur birt tvær ákvarðanir varðandi endurskoðaðar kostnaðargreiningar.
Með ákvörðun nr. 34/2011 samþykkti Póst- og fjarskiptastofnun endurskoðaða kostnaðargreiningu Mílu ehf. á lúkningarhluta leigulína, dags. 28. nóvember 2011, með þeim breytingum sem mælt er fyrir um í ákvörðuninni. Hin nýja verðskrá Mílu ehf. skal ekki taka gildi fyrr en í fyrsta lagi þann 1. mars nk., enda tilkynni Míla ehf. leigutökum um verðskrárbreytingarnar með a.m.k. 60 daga fyrirvara.
Með ákvörðun nr. 35/2011 samþykkti Póst- og fjarskiptastofnun endurskoðaða kostnaðargreiningu Símans hf. á stofnlínuhluta leigulína og lúkningarhluta leigulína, dags. 20. október 2011, með þeim breytingum sem mælt er fyrir um í ákvörðuninni. Hin nýja gjaldskrá Símans hf. skal ekki taka gildi fyrr en í fyrsta lagi 1. mars 2012, enda tilkynni Síminn hf. leigutökum um verðskrárbreytingarnar með a.m.k. 60 daga fyrirvara.
Sjá ákvarðanirnar í heild:
Ákvörðun nr. 35/2011 varðandi kostnaðargreiningu Símans hf. á gjaldskrám fyrir leigulínur (PDF)