Hoppa yfir valmynd

PFS auglýsir lausa til umsóknar stöðu hópstjóra öryggis- og viðbragðsteymis vegna netöryggismála

Fréttasafn
02. desember 2010

PFS auglýsir lausa til umsóknar stöðu hópstjóra öryggis- og viðbragðsteymis vegna netöryggismála

Í framhaldi af samþykkt Ríkisstjórnar Íslands í nóvember 2010 um stofnun öryggis- og viðbragðsteymis vegna netöryggismála, auglýsir Póst- og fjarskiptastofnun eftir hópstjóra til að móta verklag fyrir viðbragðsteymið ásamt innleiðingu þess  hjá stofnuninni.  Hlutverk viðbragðsteymisins er að greina, miðla upplýsingum og koma á samstarfi  við hagsmunaaðila hér á landi og erlendis.

Starfssvið
• Mótun verklags og innleiðing vinnuferla
• Greining á spilliforritum og viðbrögð við öryggisatvikum
• Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi um öryggi Internetsins
• Ráðgjöf og upplýsingagjöf varðandi öryggismál
• Koma á samvinnu við netöryggishópa hagsmunaaðila innanlands og stuðla að stofnun slíkra þar sem þörf er á
• Leiða atvika-, veikleika- og búnaðargreiningu ásamt því að dreifa upplýsingum um atvik og berskjölduð tölvu- og fjarskiptakerfi
• Aðstoð við uppbyggingu þekkingar í meðhöndlun öryggisatvika hjá innlendum netöryggishópum

Menntun og reynsla
Háskólapróf  í verk-, tækni- eða tölvunarfræði eða öðrum raungreinum. Sérmenntun eða starfsreynsla á sviði hugbúnaðargerðar ásamt þekkingu á fjarskiptamarkaðnum er nauðsynleg.

Aðrar hæfniskröfur
Umsækjendur þurfa að eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt sem og í hópi og jafnframt búa yfir þeim sveigjanleika og festu sem nauðsynleg er til að ná árangri í starfi.  Gerð er krafa um mikla greiningarhæfni, öguð og skipulögð vinnubrögð, ríkulega samskiptafærni ásamt getu til ákvarðanatöku við flóknar og krefjandi aðstæður.  Umsækjendur þurfa að búa yfir skilningi á internettækni ásamt færni til að meta upplýsingar um áhættu og áhrif ásamt getu til að miðla tæknilegum upplýsingum til annarra.  Góð íslensku og enskukunnátta, bæði töluð og rituð, er áskilin.

Um er að ræða krefjandi starf í síbreytilegu og spennandi umhverfi þar sem gerðar eru miklar fagkröfur.

Umsóknarfrestur er til og með 19. desember n.k.  Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið hér á heimasíðu PFS (sjá neðar). 
Umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt viðeigandi prófgögnum í viðhengi.  Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. 

Póst- og fjarskiptastofnun lítur svo á að umsókn gildi í 6 mánuði frá dagsetningu hennar, nema umsækjandi ákveði umsókninni skemmri gildistíma.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorleifur Jónasson, forstöðumaður tæknideildar, í síma 510 1505, thorleifur@pfs.is

Sækja um